Frjáls verslun - 01.07.2009, Page 54
54 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9
b æ k u r
Mikið hefur verið rætt og ritað um kosti
markþjálfunar (coaching) undanfarin misseri.
Góðir stjórnendur nýta sér markþjálfun
til að stuðla að vexti einstaklingsins og
hámarka þannig árangur liðsheildarinnar.
Sumum er þetta eðlislægt en aðrir sækja sér
þjálfun í því hvernig nota megi markþjálfun
til að ná fram því besta í hverjum og
einum starfsmanni. Kastljósinu er einmitt
beint að því hvernig stjórnandinn getur náð
fram því besta í hverjum starfsmanni með
markþjálfun í bókinni The Tao of Coaching
eftir Max Landsberg.
Oft var þörf
Oft var þörf en nú er nauðsyn. Krafan um
árangur verður sífellt háværari. Viðskipta-
umhverfi dagsins í dag gerir kröfu um að
hver einasti starfsmaður nýti krafta sína til
fulls. Með uppsögnum í fyrirtækjum hefur
álag aukist á þá sem halda störfum sínum
og því verður erfiðara fyrir stjórnandann að
uppfylla kröfur hagsmunaaðila.
Með því að beita aðferðum mark-
þjálfunar markvisst og meðvitað getur
stjórnandinn hámarkað afköst
og árangur hvers og eins og
þannig hámarkað árangur
liðsheildarinnar. Allt sem þarf
er breytt viðhorf stjórnandans
og nokkrar einfaldar aðferðir
sem höfundur lýsir á hnit-
miðaðan og aðgengilegan hátt
í bókinni.
Fyrir hverja
Bókin er fyrir alla sem vilja
stuðla að vexti starfsmanna sinna en jafn-
framt fyrir þá sem vilja kynnast aðferðum
markþjálfunar á einfaldan og aðgengilegan
hátt. Hún hentar vel þeim sem leiða hópa
eða verkefni, svo sem verkefnastjórum,
liðsstjórum og hópstjórum. Bókin er mjög
stutt og einföld og sett fram í formi sögu
af stjórnandanum Alex sem leitar ráða hjá
vinnufélögum sínum, fær sjálfur bæði góða
og laka markþjálfun og prófar sig sjálfur
áfram með aðferðafræðina sem sett er fram
í bókinni.
Til eru fjölmargar bækur
um markþjálfun (e. coaching)
en kostur The Tao of Coaching
er tvímælalaust hve einföld og
fljótlesin hún er. Eigi að síður
á hún erindi bæði til þeirra
sem lítið hafa unnið með þessa
hugmyndafræði og eins þeirra
sem hafa nýtt sér markþjálfun
í lengri eða styttri tíma. Enn á
ný sannast að einfaldleikinn er
oft best fallinn til árangurs.
Hugmyndafræðin
Höfundur byrjar á því að skilgreina
markþjálfun og hefst svo strax handa við
að skýra út þá þætti sem markþjálfun felur
í sér, t.d. að spyrja spurninga í stað þess
að segja fólki hvað á að gera, mikilvægi
markvissrar og stöðugrar endurgjafar,
hvatningu, spurningatækni og mikilvægi
þess að meta hversu tilbúinn starfsmaðurinn
er að takast á við tiltekið verkefni. Með
þetta að leiðarljósi hjálpar stjórnandinn
starfsmanninum að hjálpa sér sjálfur við að
Bókin The Tao of Coaching sýnir hvernig stjórnandinn getur náð fram því besta
í hverjum og einum starfsmanni með markþjálfun – en hún snýst m.a. um
mikilvægi markvissrar og stöðugrar endurgjafar, hvatningu, spurningatækni og að
spyrja spurninga í stað þess að segja fólki hvað það eigi að gera.
TexTi: unnur valborg hilmarsdóttir
Max Landsberg er
höfundur bókarinnar
The Tao of Coaching.
Bókin THe TAo of CoACHInG:
Náðu fram því besta