Frjáls verslun - 01.07.2009, Qupperneq 70
70 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9
K
YN
N
iN
G
Oddi býður upp á hagkvæma prentun með
vörulínunni Betri Kaup sem hleypt var af
stokkunum fyrir ári síðan og býður upp
á meiri hagkvæmi sem hentar íslenskum
fyrirtækjum og lækkar kostað við prentun
verulega.
„Betri Kaup er vörulína sem nær yfir
helstu rekstrarvörur, svo sem bréfsefni,
bæklinga og nafnspjöld. Hluti af kostnaði
hvers prentverkefnis er startkostnaður, svo
sem prentplötur og innstilling í prentvél,
og hann er sá sami hvort sem upplagið er
100 eða 100.000. Þetta gerir að verkum
að minni upplögin, sem henta gjarnan
dæmigerðum íslenskum fyrirtækjum, geta
verið tiltölulega óhagkvæm í framleiðslu.
Í Betri Kaupa vörulínunni prentum við
verkefni frá mörgum viðskiptavinum saman,
startkostnaðurinn skiptist á milli þeirra og
kostnaðurinn við hvert verk lækkar verulega.
Hagkvæmnin er meiri eftir því sem fleiri
verkefni eru prentuð saman þannig að
viðskiptavinir okkar njóta þess hversu
markaðshlutdeild okkar er stór.“
Bakhjarl Alþjóðlegrar athafnaviku á
Íslandi
Hjá Odda er litið svo á að ekkert verkefni sé
of lítið og ekkert of stórt.
„Íslensk fyrirtæki eru af öllum stærðum
og gerðum og það skiptir okkur miklu máli
að þjónusta þau öll vel,“ segir Jón Ómar.
„Oddi hefur frá stofnun verið í fararbroddi
á íslenska prentmarkaðnum og við værum
ekki í þeirri stöðu ef við legðum okkur ekki
fram um að sinna öllum verkefnum, stórum
sem smáum. Vörulínan er gott dæmi um
það hvernig við nýtum okkur stærðina til
að þjónusta minni fyrirtæki betur, og einnig
getum við boðið uppá stafræna prentun í
meiri gæðum en þekkist hjá öðrum. Það er
þess vegna sama hvort um er að ræða 10
nafnspjöld eða 100.000 bæklinga, verkið er í
öruggum höndum hjá Odda.“
Oddi er bakhjarl Alþjóðlegrar
athafnaviku á Íslandi í samstarfi við Innovit.
„Athafnavikan er alþjóðlegt verkefni
sem gengur út á að hvetja frjóa hugsun
og framkvæmdagleði sem er sérstaklega
mikilvæg þessa dagana,“ segir Jón Ómar
Erlingsson, framkvæmdastjóri Odda.
„Okkur finnst mjög ánægjulegt að geta lagt
þessu góða framtaki hjá Innovit lið.“
LÆGRA VERÐ - SÖMU GÆÐI
Prentsmiðjan Oddi ehf., Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is
Framkvæmum
hugmyndir
Vörulýsing: nafnspjöld:300g pappír / bréfsefni: 90g skrifpappír / bæklingar: 150g pappír.
Prentað annars vegar í fullum lit. Vinnslutími er er alltaf 4 virkir dagar. Frá þriðjudegi til
föstudags og svo föstudegi til miðvikudags. Skila þarf gögnum til Odda fyrir kl. 12:00 á
skiladegi og þarf próförk að vera samþykkt fyrir kl. 14:00 sama dag. Varan er tilbúin á
afgreiðslulager Odda að Höfðabakka 7. *Verð er gefið upp án 24,5% vsk.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
Í vörulínu Betri kaupa eru flestar þær vörur sem fyrirtæki þarfnast við
daglegan rekstur eins og nafnspjöld, bréfsefni og reikningar. Auk þess
er gott úrval af kynningarlausnum eins og bæklingum og einblöðungum.
Oddi
Hagkvæmari prentun
Jón Ómar Erlingsson, framkvæmdastjóri Odda: „Íslensk fyrirtæki eru af öllum stærðum
og gerðum og það skiptir okkur miklu máli að þjónusta þau öll vel.“
„Í Betri Kaupa vörulínunni
prentum við verkefni frá mörgum
viðskiptavinum saman þannig að
startkostnaðurinn skiptist á milli
þeirra og kostnaðurinn við hvert
verk lækkar verulega.“