Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Side 94

Frjáls verslun - 01.07.2009, Side 94
Bílar Hámarkshraði 303 km tExti OG lJÓsmynd: PÁLL sTEFÁnsson 94 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 8 Porsche í kína. Af öllum stöðum, þá var nýi fjögurra dyra Porsche Panamera fyrst kynntur umheiminum á alþjóða bílasýningunni í sjanghæ í kína síðastliðið vor. Þessi 5 metra lúxusbíll er loksins kominn til Íslands. valið er auðvelt; vilt þú s-útgáfuna með 400 hrossum eða turbo með sömu v8, 4,8 lítra vélinni, en með tveimur túrb- ínum sem auka hestöflin um 100, upp í fimm hundruð. Bíllinn er afturhjóladrifinn, en hægt er að fá allar útgáfurnar með Ptm (Porsche traction management) fjórhjóladrifinu. Panameran er fáanleg sex gíra beinskipt eða með 7 gíra sjálfskiptingu. Af hverju kína? Jú, kína er stærsti bílamark- aður í heimi og þar finnast líklega flestir kaup- endur Porsche Panamera bílsins. kínverskir auð- menn eru margir hverjir ekki með bílpróf, en þetta er líklega hin fullkomni bíll til að komast hratt og örugglega frá A til B. túrbó-bílinn er undir fimm í hundraðið. Frábært. Hönnun bílsins er djörf, í anda Porsche, og setur algjörlega ný viðmið í flokki lúxusbíla. Að innan er hvert smáatriði úthugsað, það er ekkert til sparað. Fullkomin þýsk hönnun eins og hún gerist best. Og plássið, fyrir aftursætisfarþega, er frábært. Það er gaman og krefjandi að keyra 911 bílinn, en að keyra Panamera er bara gaman. maður verður eiginlega undrandi hvað gott er að keyra hann, þrátt fyrir stærð og þyngd. Fullkomnir aksturseiginleikar. svo fullkomnir að margir eiga eftir að segja upp einkabílstjóranum, taka bílpróf og skemmta sér ñ alla leið í vinnuna. Páll stefánsson reynsluekur Porche Panamera.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.