Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Page 12

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Page 12
TÍMARIT MÁI.S OG MENNINGAR () li! að „vera í inánuS þræll“. Hafi ég efni á að fara kauplaust í vegavinnu, geri ég vart við mig hjá næsta vegaverkstjóra. Ef mig langar til að stunda kaupavinnu i sveit, án endurgjalds, sný ég mér til einhvers bónda og bið hann að lofa mér að slá gras mér til skemmtunar. Sama máli gegnir um jarðræktarvinnu. Enginn kraftur milli himins og jarðar getur bannað þeim Skiila Guðmundssyni kaupfélagsstjóra og Lúðvik Guðmundssyni skóla- stjóra að 'dnna kauplaust, ef þá langar til þess eða hafa efni á þvi. Allar lagagreinar eru hér óþarfar. Hitt er annað mál, hvort almennir verkamenn, það er að segja fólk, sem hefur ekki aðra vöru að bjóða en vinnuafl sitt, str og sínum til framdráttar, álítur það mjög heppilegt að gefa atvinnurekendum, hverju nafr.i sem þcir kunna að nefnast, vöru sína á þennan hátt, enda rnundi slikt verða upphaf lmngurs- neyðar á Islandi, nema kaupmenn og framleiðendur væru uin leið skyldaðir til að afhenda sinar vörur gefins. Virðist hitt miklu einfaldara, að vinnandi mönnum væri bannað að selja vinnu sína undir taxta en gefa hana. Lög um, að menn skuli gefa vinnu sina, hafa ekki skynsamlegan tilgang, nema að þvi er snertir eina stétt manna, og það er hátekjufólk, það fólk, sem á ekki af- komu sína undir sölu vinnuafls síns, heldur lifir á eignum sín- um. Slikt fólk, en ekki almenna verkamenn, mætti að ósekju lög- skylda til að „moka skíl fyrir ekki neitt“ í kaupstöðum og hreppsfélögum. H. K. L. * EVRÓPA SVELTUR. Þegar minnzt er á hörmungar styrjald- arinnar, mun flestum koma fyrst í hug ýmsir þeir atburðir, sem oft er getið um í stríðsfréttum blaða og útvarps: Loftárásir á fjölmennar borgir, múgmorð á saklausum sæfarendum eða inn- rásir óvigra vélahersveita í hlutlaus smáriki. Ógnir af þessu tagi eru vissulega skelfilegri en orðum taki, en þegar á allt er litið, eru þó ef til vill aðrar afleiðingar styrjaldarinnar enn ægilegri, svo sem hungur og margvíslegur skortur annar og sjúkdómar. í hernumdu löndunum og viðar á meginlandi Evrópu virðist liung- urvofan og fylgifiskar hennar nú þegar fara herjandi landshorna milli. Hér fer á eftir stuttur kafli úr grein, sem birtist i amer- iska tímaritinu „Life“ 24. marz þ. á. eftir fréttaritara þess i Ber- lín, J. C. Cudaby. — Cudaby er i senn merkur rithöfundur og meðal þekktustu stjórnmálamanna Bandarikjanna og hefur ver- ið sendiherra þeirra víðs vegar i Evrópu. — Grein þessi fjall- ar aðallega um ástandið á Spáni, en þangað fór liöfundurinn.

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.