Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Side 16

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Side 16
Kristinn E. Andrésson: Öll þjóðin mótmælir. Þegar ljrezk stjórnarvöld létu hertaka ísland 10. mai 1940, gáfu þau út hátíðlega yfirlýsingu um það, að þau hefðu engin áform um að hlanda sér inn í stjórn lands- ins og ætluðu „að gera ekkert á móti íslenzku land- stjórninni og íslenzka fólkinu'. fslenzka ríkisstjórnin mótmælti liernáminu. Þjóðin bað ekki um neina erlenda vernd. Hernámið fór fram án vilja liennar og vitundar. Hinni friðsömu og varnarlausu íslenzku þjóð kom samt ekki til hugar að sýna setuliðinu nokkurn mót- þróa, eftir að það var hingað komið. Hún var gjörn á að treysta því, að Bretar myndu forðast íhlutun um málefni okkar og virða lög og rétt landsins. Hún vildi sízt af öllu ætla Englendingum það, að þeir væru liing- að komnir til þess að sölsa undir sig gæði landsins né beita landsfólkið ofheldi, heldur hefur hún staðfast- lega trúað því, að þeir hafi eingöngu hrotið hlutleysi okkar af hernaðarlegri nauðsjm til þess að stvrkja að- stöðu sína í Atlantshafi. Brezkur málstaður í þessari styrjöld hefur notið mikillar samúðar fslendinga. Menn hafa heyrt ensku ríkisstjórnina lýsa margsinnis vfir því, að réttur smáþjóðanna væri henni lieilagt mál, og að Bretar væru í þessu stríði að berjast fyrir lýðræði, frelsi og menningu. íslenzku þjóðinni var annað i hug en að vilja leggja stein í götu nokkurs ríkis, er berðist fyrir jafn háleitum hugsjónum, meðan hún auk þess hafði tækifæri til að sannfærast um það af framkomu þess við sjálfa sig, hver alvara fylgdi máli. Yfir sambúðinni

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.