Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Page 23

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Page 23
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAH 17 ar árangurs geta menn vænzt af mótmælum ríkisstjórn- arinnar, þegar þeir, sem fara með æðstu völd þjóðar- innar út á við, taka málstað liins erlenda valds á móti löndum sínum? Hvað verður i alvöru gert til þess að fá þá Einar Olgeirsson og félaga lians heim aftur af ríkisstjórn, þar sem Stefán Jóliann Stefánsson fer með utanríkismálin? Og livers er að vænta af ríkisstjórn- inni allri í lieild, er samkvæmt vfirlýsingum á Alþingi var sjálf komin á fremsta hlunn með að afnema ritfrels- ið í landinu. Það er ekki nóg að semja hátíðleg mót- mæli og' láta þar við sitja. Það verður að fvlgja þeim mótmælum eftir. Ivrafa þjóðarinnar er, að Einari 01- geirssvni og félögum hans verði skilað aftur. Fáist ekki leiðrétting á þessu máli af hálfu Breta, verður það ekki skilið á annan veg en það sé fyrir slælega fram- göngu rikisstjórnarinnar, nema hún gefi fullgilda skýr- ingu. Það er ennfremur krafa til ríkisstjórnarinnar, að hún fái leiðréttingu á þeirri skerðingu ritfrelsis í landinu, sem framkvæmd var með hanni Þjóðviljans. Það er önnur hlið á þessu máli, sem snýr að sósial- istum i landinu. Einar Olgeirsson er ekki aðeins einn af þingmönnum þjóðarinnar, heldur voru þeir félagar rit- stjórar að djarfasta málgagni alþýðunnar og eina dag- lilaði stjórnarandstöðunnar í landinu. Róttækasti hluti islenzkrar alþýðu hefur með brottnámi þeirra misst heztu vini sína og málsvara, sem héldu af hugdirfzku fram rétti hinna fátækustu gegn margvíslegri rangsleitni þjóðfélagsins. Það er alltof létt aðferð, hafi sú verið tilætlunin lijá nokkrum hér innanlands, að losna á þann liátt við andstæðinga sína að svipta þá persónulegu frjálsræði og málsfrelsi. 2

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.