Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Side 29
Halldór Kiljan Laxness:
Temúdjín snýr heim.
SMÁSAGA.
(Saman sett upp úr gömlum bókum).
Þegar hirðinginn Temúdjín hafði lagt rúman helm-
ing veraldarinnar undir sig með báli og brandi, aust-
an úr Ivínaveldi vestur að landamærum germanskra
þjóða, og slegið upp tjöldum sínum á Indusbökkum,
í slóð Alexanders, og var að leggja niður fvrir sér
hvernig leiðin vfir Himalajafjöll og Tíbet mundi bezt
farin, og' lýður Búddha liægast unninn, þá bar svo til
einn dag, að dýr hljóp af skógi i veg fyrir njósnar-
menn kansins í fjöllunum, áþekkt stórvöxnum hirti,
grænt að lit, með tagl sem hestur og eitt liorn; það
nam staðar á hæð einni gegnt mönnunum, leit á þá
dökkum, kyrrum augum, tók til orða og mælti:
„Segið drottni vðar að nú sé mál að snúa heim.“
Temúdjín var þegar hér kemur sögu maður hnig-
inn að árum. Enginn maður, sem uppi hefur verið, átti
í slóð sinni fleiri brenndar horgir og eydd lönd, og eng-
inn hafði látið reisa stærri upptyppinga úr hauskúp-
um í sporum sínum. Hann liafði þann sið að uppræta
óvini sína. Þegar honum þótti mikið liggja við, eins
og i höfuðborginni Barmidjan, þar sem sonarsonur lians
féll í orrustu, skipaði hann svo fyrir að hvergi skyldi
standa steinn yfir steini í horginni og' engu lífi þyrmt,
hvorki manni, konu né barni, dýri né fugli. Hefur ekki
uppi verið i heiminum voldugri konungur né viturri
hershöfðingi en þessi mongólski hirðingi, uppsprottinn
úr kjarrhæðum norðurs, þar sem vatnið í ánum er kalt
og tært og straumhljóð þeirra kátt eins og litlar hjöllur.