Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Qupperneq 31
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
25
lieilagir livor af sínum flokki, og skal leiða báða fyrir
þig ef þú vilt.“
Kaninn sagði að svo skyldi vera.
Þá var fvrst leiddur inn biskupinn yfir Tvílísi, og
bauð kaninn að levsa skvldi af bonum fjötrana með-
an þeir ræddust við.
„Dýr liefur lilaupið af skógi,“ mælti kaninn, „og heit-
ir Kístúan. Það hefur mælt þessum orðum: ’mál er
að kaninn snúi beim’. Ef elli sækir kaninn heim, liver
vörn er gegn því?“
Þá svaraði biskupinn yfir Tvílisi:
„Dýrið býður þér varnað á því, kirkjubrjótur, að
ef þú snúir eigi þegar af brautu svndarinnar, takir
sinnaskiptum og iðrist, muni þér ekki gefinn lengri frest-
ur, heldur munirðu hljóta bústað í eldslogum vítis brenn-
anda, og muni þér þá um eilífð vera hulin ásjóna Guðs
almáttka og' Krists sonar hans.“
Þá svaraði kaninn: „Ekki verðskuldið þér Krists-
þrælar að vera vfirunnir af miklum sigurvegara og
luefði ykkur betur að vera lúbarðir af þrælum.“
Þá var leiddur fyrir drottin heimsins annar töfra-
maður, ýmanninn frá Herati, og bað kaninn að levsa
af bonum böndin meðan þeir ræddust við.
Það brann eldur úr augum ýmannsins, því kaninn
bafði hlaðið báa valköstu í landi lians. Hann tók svo
til orða:
„Það er inntak orða dýrsins, að hvert spor sem þú
stígur framar skal vera bölvað af Allah unz sverð
spámannsins hefur komið fram hefndum og sjaríatið
er aftur gert að lögmáli.“
Kaninn svaraði: „Tröll hafi spámann þinn. Sverð
lians mun ég, Temúdjin, stórkaninn, brjóta á kné mér
og vfir sjaríati bans skal ríkja jasak mongólans. Og
hvar sem hófsporin liggja eftir hross Múhameðs þar
skal ég fremja morð og evðingu. Og taki burt liund
Múbameðs og kefli hann.“