Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Side 33

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Side 33
TÍMARIT MALS OG MENNINGAR 27 sem aldrei hafði komið út úr sveit sinni, væri stofnað í voða með því að láta hann ferðast vfir endilangan heiminn, vfir þvert Ivínaveldi, yfir gresjur og hálendi Mongólíu, sanda og eyðimerkur Miðasíu og liáfjöll Vest- urasíu, yfir fjölda ríkja sem enn voru ekki að fullu brotin undir vald Drekans, en svo nefndist merki kans- ins, allt til Indushakka. Þótt vel væri á haldið mundi slík ferð ekki takast á skemmri tíma en ári hvora leið. Þar við hættist að það var alkunna að Sing-Sing-Hó hafði látið lijá líða að sinna kalli voldugra konunga, bæði útlendra og innlendra, þar á meðal konungi hins kínverska Norðurríkis og konungi hins kínverska Suður- rikis, báðum. Þá sagði Temúdjin: „Konungur Norðurríkisins og kon- ungur Suðurríkisins lúta háðir valdi Drekans og greiða mér skatt. Hvorugur þeirra er maður til að veita meist- aranum Sing-Sing-Hó þá vernd sem byrjar að veita slík- um höfuðklerki. Og þótt hann hafi hyrgt þessum kon- ungum ljós augna sinna mun hann vitja mín, Temúd- jins, stórkansins.“ Síðan kallaði hann fyrir sig hinn kínverska ritara sinn og sagði honum fyrir bréf það er hann sendi meistar- anum Sing-Sing-Hó. „Himinninn,“lét liann rita, „himinninn liefur litiðKína- veldi vanþóknunaraugum sakir stórlætis konunganna og bílífis þeirra. En eg er upprunninn úr hinum kjarr- vöxnu hæðum í norðri, fæddur þar sem vatnið i ánum er kalt og tært og straumhljóð þeirra kátt eins og litlar bjöllur. Eg er hafinn yfir ástríður og þekki ekki óhóflegar þarfir. Bílífi er mér viðurstyggð og' eg ástunda meðal- hóf. Eg á aðeins eina huru og et einn rétt i mál. Eg et sömu fæðu og klæðist sömu tötrum og hinir fátæku hirð- ingjar minir. Eg álít þjóðirnar hörn mín og hef samúð með vitrum mönnum eins og þeir væru hræður mínir. Okkur kemur ævinlega ásamt í höfuðgreinum og vér erum bundnir hverir öðrum í ást og virðingu. í hern-

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.