Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Side 74

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Side 74
68 TÍMABIT MÁLS OG MENNINGAB valda sársauka eða kvölum. Og þegar svo er: hver get- ur þá varið það fyrir samvizku sinni og fvrir framtið- inni, sem vér eigum að standa reikningsskap allra gerða vorra, að sitja aðgerðalaus og biða þess, sem verða vill? Nei, hér þarf að þrauthugsa ráð og framkvæma þau — vaka og vinna og falla ekki í freistni. Vér eigum auðvitað að reyna, svo sem unnt er, að afstýra öllum þeim fjórum deildum, eða fjórum stig- um, hættunnar, sem ég nefndi áðan. Það er sjálfsagt að revna eftir mætti að vera við þvi húin að forða eignum vorum og sjálfum oss, ef árás ber að höndum. Það er sjálfsagt að gera það, sem unnt er, til þess að vernda einstaklinga þjóðar vorrar frá spillingu og böli. Því fremur þurfum vér þess, íslendingar, sem vér er- um öðrum þjóðum fámennari um stór verk, og eigum því meira undir mannsliðinu. Og það er sjálfsagt — sjálfsagðast af öllu — að vér reynum af fremsta megni að verja og vernda og efla sjálfstæði vort, þjóðmenn- ingu og þjóðarmetnað. Og þar sem framtíð þjóðar vorr- ar á mest undir þessu komið, og það er að ýmsu leyti víðtækast, .vandamest og fjarlægast daglegu amstri voru og matarstriti, virðist sjálfgefið, að að þvi eigum vér að einheita hugum vorum og störfum fyrst og fremst. Oss tjáir ekki að loka augum vorum fyrir því, að jafndreifðir og vér erum, ósamtaka og ósamhuga, vinnum vér aldrei þau stórvirki, sem vér vitum, að vér þyrftum að vinna. Og riður því fremur á að gera sér ljóst, livar hættan er mest og varnarþörfin hrýnust, og heita þangað kröft- um vorum fyrst og fremst. Enginn vor á meðal veit um það, hvað þjóð sú, sem beitt hefur fjölmenni sínu og vopnavaldi til að her- nema land vort að oss þvernauðugum og ganga á lielg- an rétt vorn, ætlar sér um land vort, er styrjöldinni siotar. Vér vitum það eitt, að hún hefur lieitið að skila þá öllu, sem hún hefur frá oss tekið — og skilað verð-

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.