Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Síða 83

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Síða 83
TÍMARIT MÁLS OG MENNIN'GAR 77 styggð. Það var næstum því eitthvað dularfullt við hann, sem vakti hrylling, og það, í sambandi við meðaumkunina, gerði það að verkum, að ímyndunarafl alþýðunnar reyndi að finna eins konar afsakanir fyrir ómennið. — Jafnvel, meðan hann var enn á lífi, mynduðust kynjasögur um hann, sögur, sem hann sjálfur jók, gerði sér hagnað af: Hann liafði móðgað huldufólk í æsku og þess vegna orðið ólánsmaður, hann hafði orðið fyrir bölhæn- um eða álögum, einhver meinþrungin utanaðkomandi örlög höfðu varpað steini ógæfunnar í götu hans, svo að hann fékk ekki rönd við reist. Menn urðu að sætta sig við hann, eins og við um- skiptinginn eða uppvakninginn, en í raun og veru breytti þetta uð engu leyti afstöðunni til hans. Auðveldast var að gefa skýr- ingu á þeim, sem augsýnilega voru fávitar eða vitfirrtir að meira eða minna leyti — Fáráðlingurinn var „Guðs-volaður“, vitfirr- ingurinn var það stundum líka, ef ástand hans var þá ekki að kenna drauga-ásókn eða einhverju þvi um liku. Meðaumkunin með þeim, sem þannig voru volaðir, var oft — jafnvel oftast — viðbjóðnum yfirsterkari. — Sama var að segja um þá, sem voru líkamlega fatlaðir. — „Engum er alls varnað“, segir máltækið, þó átti það nú naum- ast við um alla flakkara. Sumir flakkarar höfðu þó yfirburði í einhverju. Stundum voru það þó sennilega ímyndaðir yfirburð- ir, en það var allajafna nægilegt til þess, að þeir héldu þeim sjálfir fram, gerðu sér af þeim eins konar gerfi, sem þeir koniu fram í, og þá kom það alloft fyrir, að til viðbótar við aðrar tilfinningar alþýðumanna gagnvart þeim, myndaðist viss aðdá- un. — Stundum tókst þeim jafnvel að festa í hugum manna eins konar trú á mikihnennsku, sem þó ávallt hafði jiann stóra ann- marka, að hún kom engum að gagni — ekki einu sinni mikil- menninu sjálfu. Vissulega væri það alger misskilningur á þvi þjóðfélagsfyrir- brigði, sem flakkararnir voru fyrr á timum, ef við héldum, að þeir hafi verið afburðamenn, sem samtíðin misskildi og gerði að ræflum, jafnvel þó stundum hefði getað orðið annað og meira úr þeim, ef jieir hefðu haft tækifæri þau, er nú bjóðast. — En hitt er víst, að sumir þessara manna urðu hreinir meistarar i sjálfsblekkingu og lífslygi. — Slík fyrirbrigði eru reyndar ávallt til: „En bruger brændevin og en anden bruger lögne“, segir Ibsen, og það sannast alltaf um þá, sem hafa ekki andlegan þrótt til að viðurkenna sannleikann, þegar hann kemur illa við þá sjálfa, horfast í augu við erfiðleikana, sem oftar eru innra eðlis en ytra, og sigrast á sinni eigin ómennsku. Eftir þeim sögum að dæma, sem i ungdæmi mínu gengu um
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.