Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Side 86

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Side 86
80 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Gunnar Benediktsson: Sóknin mikla. Víkingsútgáfan 1940. Fáar bækur síðasta árs gengu eins vel út og Sóknin mikla eft- ir séra Gunnar Benediktsson. Það er iika skemmtileg bók. Hún segir í góðlátlegu gamni, og þó djúpri alvöru, frá skrípalátum þeim, sem komið var á stað hér í fyrra, þegar mönnum var skip- að að vera Finnlendingar á íslandi um skeið. Gunnar er raun- ar meiri sálusorgari en ádeilumaður, hann talar af klerklegu umburðarlyndi um menn, sem hann hlýtur þó að álíta meira en meðal-helvitis-börn, líkt og hann missi aldrei vonina um, að einhvern tíma kunni þeir þó að gera eða segja eitthvað, sem muni forða þeim frá eilifum kvölum. Og þar sem venjulegt kristið fólk sér aðeins fyrirfram útskúfaðar sálir, menn, sem láta kaupa sig fyrir fimmtíu króna mánaðarhækkun á bitlingi til hvaða verks sem er, þar greinir Gunnar með rólegri íhugun sálusorg- arans rök eymdarinnar, útskýrir sálarlíf þeirra allt frá rótum, unz maður er reiðubúinn að fyrirgefa þeim; eða að minnsta kosti tekur maður ekki alit of mikið marlc á þeim, eftir að Gunnar hefur veitt þeim skriftir. Samt er það svo, að þótt Gunn- ar Benediktsson virðist í fljótu bragði vera með kærleiksbros á vör að klóra vinum sínum bakið við iítilsháttar óværu, þá veit maður stundum ekki fyrri til en skriftabörn hans Ijósta upp ópi miklu og emjan, og það er kannski ekki alveg laust við, að sumir séu ofurlítið lilóðrisa á hryggnum, þegar sálusorgunin er á enda. Já, mikið er Sóknin mikla skemmtileg og aðlaðandi bók, og gaman að rifja upp aftur írafárið i hitteðfyrra, þegar yfirvöld landsins bönnuðu íslendingum að minnast fullveldisafmælisins 1. desember og neyddu stúdenta til að fresta sjálfstæðisfylleri- inu í 24 klukkustundir, og nörruðu saklaus sveitakvenfélög til að halda dansleiki og bögglakvöld fyrir hinn illræmda rússneska keisaragenerál, Mannerheim. Það voru dýrlegir timar fyrir spottara. Sjaldan hafa útlend- ingar logið af annarri eins ástriðu að íslendingum eins og fréttastofur heimsvaldasinna og auðkýfinga lugu í sambandi við hina finsk-rússnesku deilu, og eru um það mörg minnisverð dæmi. En mjög sakna ég í Sókninni miklu einnar skemmtileg- ustu frásagnarinnar af bardagaaðferðum Rauða hersins í viður- eigninni við Mannerheimliðið, og má lnin fyrir engan mun gleym- ast í annarri útgáfu bókarinnar. Það var sagan, sem Finnlend- ingurinn Yoristo flutti Reykvikingum i fyrirlestri hjá Norræna félaginu hér á siðastliðnum vetri. Þegar þessi prýðilegi sjómað- ui hafði skýrt frá hinum fjallháu bryndrekum, sem Rauði her- inn hefði notað, þegar hann brauzt inn í Mannerheimlínuna,

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.