Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Síða 88

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Síða 88
82 TÍMARIT MÁLS OG MENNIXGAB Mitt í þessari almennu, sjálfvirku starfsemi, getur manni orS- ið hverft við að heyra upprunalegan hreim í ljóði, skynja ein- hvern innri veruleik bak við orð, ég tala nú ekki um eitthvað, sem á rót sína í örlögum kynslóðarinnar, eða þó ekki sé nema trega eins manns. Þegar Steinn Steinarr gaf út fyrslu ljóðabók sína, lét sá, er þetta ritar, svo ummælt á prenti, að telja mætti á fingrum sér þau skáld íslenzk, nú á lifi, sem væru honum meiri. Eftir lest- ur síðustu ijóðabókar hans, Spor í sandi, er mér nær að halda, að þau megi telja á fingrum annarrar handar. Höfundur þessara ljóða er sterkt, upprunalegt og persónulegt Ijóðskáld, að vísu nokkuð fáhreyttur i efnisvali, en vandaður listamaður innan þeirra takmarka, sem liann setur sér. Hann nær lengst í túlkun sinni á þeinr kenndum ömurleika og fánýtis, sem grúfa yfir sál hins snauða, rótlausa einstæðings. Mörg kvæð- anna eru lifandi túlkun vorrar aldar á anda sálmanna frá 17. öld um forgengileik heimsins og fallvaltleik mannlegs lífs, og snilldarverk bókarinnar eru heimsádeilukvæði eins og „Það bjargast ekki neitt,“ og „Svo óralangt þú einn og hljóður gekkst“, þótt þau séu. ef til vill, full-nakin i tjáningu sinni og segi of berum orðum þá hluti, sem betur fara i rósamáli og tákna. En skáldið á líka tón, sem býr yfir karlmannlegum andmælum gegn tilfinningu vanmáttarins, eins og fram kemur í hinu stolta smákvæði „Og líf hvers manns“, þar sem þessar linur standa: Þín visna hönd, sem vann þér ei til matar, skal velta þungum steini úr annars braut. Mér er ekki full-ljóst um sonnettuna Leyndarmál, „Þeim stutta tima, fyrr en skip mitt fer“, hvort hún er heldur snilldarverk eða svindill, nema hvorttveggja sé, en ailt um það hefur hún sízt minna aðdráttarafl en þau kvæði bókarinnar, þar sem ber- ara er talað, svo skáldið virðist jafnvel vera þar i vitorði um leyndarmálið, sem Óðinn hvislaði i eyra Baldurs forðum. Þri- hendurnar þrjár, (braghendur), sem skáldið nefnir Mansöng úr Hliðar-Jóns-rimum, eru ekki aðeins yndislega lausar við mál- æði, heldur má benda á þær sem fullgilt dæmi listar í smáu formi; í þessími vísum stendur skáldið bersýnilega á herðum þeim Páli Ólafssyni og Sigurði Breiðfjörð. Brúðkaupskvæðið er líklegt til að verða vinsælasta kvæði bókarinnar, enda mestur skemmtilestur, þótt það sé sums staðar dálítið billegt, og eftir- mælið um Konmiúnistaflokk íslands er fyrirmyndar petítismi, smáletursblaðamennska, sem jafnvel snillingar i rimaðri dag-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.