Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Page 91

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Page 91
TÍMARIT MÁI.S OG MENNINGAR 85 flutninga héðan til nýja heimsins á síðustu öld. Sem dæmi um nauðsyn vesturflutninga á 19. öld greinir höf. m. a. þann at- hurð, að „sunnudaginn fyrir jól“ árið 1311 hafi Sturla nokkur Arngrímsson í Skaftafellssýslu séð lilaup stefna á bæ sinn úr. Kötlu, og hafi hann þá „gripið ungbarn sitt úr baðstofu og stokkið með það upp á garð, sem hlaðinn var kring um bæinn.“ í því kom flóðið æðandi og tók jaki Sturlu með sér, ásamt barninu, út á sjó, og rak síðan austur með landi í nokkra daga, unz hann lenti á Meðallandsfjörum. „Til þess að lialda harninu lifandi skar hann geirvörtur af brjósti sér og lét það sjúga blóð sitt, en sjálfur var hann matarlaus þennan tíma. Hvorugu varð meint af þessu ferðalagi,“ bætir höf. síðan við. Annað dæmi um orsakir til vesturflutninga á 19. öld er það, að stúlka ein og liundur með henni urðu á 14. öld undir sandi og vikri, sem lagðist yfir „fiskiklefa“ um haust, og björguðust ekki fyrr en um vorið. Þegar stúlkan bjargaðist, var hún þó ekki „ver að sér“ en svo, segir höf., „að hún vissi hvaða mánaðardagur var.“ Það er undarlegt fyrirbrigði að sjá skrifað um fólksflutninga frá Evrópu til nýja heimsins í sama stíl og ef sveitaprókúristi væri að skrifa vörn i glæpamáli. Yfirleitt er engin ástæða til að rita bækur til afsökunar útflutningi manna af Evrópulönd- um til Ameriku, og þá ekki fremur af íslandi en öðrum lönd- um. Útflutningur Evrópumanna til nýja heimsins á síðustu öld- um á sér þekktar orsakir, sem allar eru of náttúrlegar til þess, að í þeim felist „sök“ á hendur nokkrum, fremur en t. d. tróp- ismanum i dýraríkinu. Óáran, slysfarir, náttúruskaðar og hung- ursneyð er ekki heldur sérstaklega íslenzkt fyrirbrigði, en hef- ur verið fylgja mannkynsins frá alda öðli í hverju landi, og leikið flest Iönd harðar en ísland, að minnsta kosti vorum vér lausir við styrjaldir og afleiðingar þeirra. Og það er líka mis- skilningur, að lönd Vesturálfunnar séu nokkur undantekning frá öðrum löndum um þetta, náttúruskaðar á íslandi eru meira að segja liégómlegir i samanburði við þau firn, sem að jafnaði dynja yfir Vesturálfu, bæði náttúruskaðar, svo sem flóð, hvirf- ilbyljir, jarðskjálftar, skrælnun og eyðing landa, og þjóðfélags- mein, svo sem uppflosnun og hungursneyð meðal bænda, krepp- ur, atvinnuleysi, eymd, styrjaldir og aðrar yfirþyrmingar. Það, sem tók við íslenzkum útflytjendum í Kanada var enda sizt betra en kjörin, sem menn höfðu átt við að búa hér heima, i mörg- um, líklega flestum tilfellum, langtum verra lif. Og þau lífskjör, sem islenzk nútimakynslóð á við að búa i heimalandi sínu, eru yfirleitt betri en það lif, sem menn lifa í Kanada, svo sú kenn- ing, að þegar menn fluttu af íslandi til Kanada, hafi þeir flutzt

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.