Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1950, Page 159

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1950, Page 159
UMSAGNIR UM BÆKUR 149 máski er hún að sumu leyti holi lesn- ing á hinni hraðfara breytingaöld, sem við lifum nú á. Persónurnar eru frem- ur sviplitlar. Þó er Anna hugþekk per- sóna og ber þrátt fyrir allt öfugstreymi svipmót nýs tíma. Brandur er hins vegar ofurseldur umhverfinu, almenn- ingsálitinu. Hann vill þræða hinn vand- rataða veg rétttrúar og ráðvendni. En hvað stoðar það? Tortryggni og meinfýsi samferðafólksins hittir ekki síður þann samvizkusama og vamm- lausa. Eyjólfur á Húsum er fremur illa gerð persóna. Hann segir stundum það, sem hann á aðeins að hugsa. Dæmi: það, sem hann segir við Onnu á bls. 32: „Minn tími kemur seinna. Lífið hefur kennt mér að bíða eftir tæki- færunum. Þolinmæðina, þá miklu dyggð veiðimannsins, skortir mig ekki.“ Talsvert bragð er að Þórði Atla- syni, sem lifir allur í frægðarljóma fornaldarinnar. Prófarkalestur er sæmilegur. Þó eru nokkrar rangar beygingar — og rit- villur í bókinni. Þessar eru meinleg- astar: lútir fyrir lýtur á bls. 26, óvætt- in fyrir óvætturin á bls. 45, boðviði fyrir borðviði á bls. 96, vallendisbökk- unum fyrir valllendisbökkunum á bls. 97, samrýmdri fyrir samrýndri bls. 123, hvorki ... eða fyrir hvorki né á bls. 238. Eg gat þess í upphafi, að mér þætti höfundur þessarar bókar leita langt yf- ir skammt að yrkisefni. Á lífi einstakl- inganna og hinum íslenzka þjóðarbú- skap í heild verða nú svo örar breyt- ingar, að þær kalla á skáldin að taka vandamál líðandi stundar til meðferðar og skýra, hvað raunverulega er að gerast, bæði hjá þeim, sem enn þrauka við sveitabúskap, og þeim, sem eru að skapa nýja menningu í rísandi borgum. Máski er þessi saga fyrsti áfanginn á þeirri leið. En hún byrjar svo aftar- lega og gengur svo seint fram, að liöfundurinn kemst seint á leiðarenda, nema hann greikki sporið. Helgi J. Halldórsson. Agúst H. Bjarnason: Saga mannsandans. HlaSbúS 1949. Mörcum bókfúsum manni mun það enn í fersku minni, er hann las fyrsta sinni „Sögu mannsandans“. Drungi vanans grúfði þá enn yfir þröngum andlegum sjónhring, hefð og kreddur fjötruðu hugsunina. Bókakostur al- mennings opnaði varla nokkra smugu út að hinum víða heimi. Mannkyns- sagan var einvörðungu persónu- og hemaðarsaga, öll trúarbrögð villutrú og hindurvitni heiðingja, nema auð- vitað hin eina sanna trú, sem við ját- uðum sjálfir. I stuttu máli: þrátt fyrir bókhneigð sína sat þjóðin í andlegu myrkri, hneppt í kreddufjötra. Aðeins örfáum mönnum var kunnugt um hina miklu menningarstrauma, sem borið höfðu mannkynið fram á við. Þá birtist ex oriente lux. Fátækur menntamaður réðst í það stórvirki að opna augu íslendinga íyrir stórkost- legri þróun, baráttu, tvísýni og sigrum mannsandans. Það gerðist án skrums og auglýsinga. í ljósri rólegri frásögn lýsti prófessor Ágúst framsókn manns- andans, baráttu vaknandi og vaxandi þekkingar við rammt og hefðgróið íhald. Með kyndli árþúsunda gamallar vizku lýsti hann inn í leyndustu fylgsni nútíma kreddna, tók okkur, unga
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.