Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Qupperneq 3

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Qupperneq 3
TIMAKIT MÁLS OG MENNINGAR Ritstjórar: Kristinn E. Andrésson og Jakob Benediktsson Sept. 1954 15. árgangur 2. liejti Ávarp til tslendinga I maímánuði 1951 var gerður vamarsamningur milli Islands og Bandaríkjanna. Með honum var erlendu ríki tryggður umráðaréttur yfir íslenzkum landssvæðum og erlendum her leyft að dveljast hér á landi á friðartímum, þrátt fyrir eindregin loforð um hið gagnstæða. Æskja má endurskoðunar á samningi þessum og misseri síðar segja honum upp einhliða með ársfyrirvara. Samningurinn var af hálfu Islendinga gerður og undirritaður af ríkisstjórn og síðar samþykktur af Alþingi, en álits þjóðarinnar aldrei leitað. Samningur þessi svipti þjóðina óskoruðu valdi yfir landi sínu og skerti fullveldi hennar stórlega. Djúptæk áhrif hans á þjóðlífið allt hlutu að verða sérstaklega háskaleg vegna fámennis þjóðarinnar. Skaðvænlegar afleiðingar hersetunnar, þjóð- ernislegar, menningarlegar og efnahagslegar, eru líka þegar komnar berlega í ljós. Erlend spillingaráhrif flæða yfir íslenzkt þjóðlíf með síauknum þunga, fjölmennur hópur æskulýðs hefur ratað á glapstigu og atvinnuvegir þjóðarinnar riða til falls vegna hagnýtingar vinnuaflsins í hemaðarþágu. Heilbrigt sjálfstraust íslendinga og sjálfsvirðing bíður því meiri hnekki sem hersetan varir lengur. Hingað til hafa ýmsir sætt sig við þessi vandkvæði hersetunnar á þeim forsendum, að herstöðvar hér á landi tryggðu öryggi vinveittra þjóða og niyndu veita íslending- um vernd, ef til styrjaldar kæmi. Grannþjóðir vorar hafa þó ekki viljað kaupa hugs- anlegt öryggi verði erlendrar hersetu í löndum sínum. og yfir eðli vopnavemdarinn- ar hefur brugðið slíku ljósi af atburðum síðustu mánaða, að hverjum manni hrýs hugur við. Af áhrifum einnar vetnissprengingar, sem gerð var í tilraunaskyni á Kyrrahafi 1. marz, reyndist öllu lífi hætta búin á svæði, sem er þrefalt stærra en allt Island, og langt út fyrir þau takmörk berast geislavirkir hafstraumar, víðáttumikil fiskimið hafa orðið ónothæf, og af eitruðu regni hefur gróður sölnað á landi uppi í órafjar- lægð frá sprengjustaðnum. Með tilkomu þessa vopns hefur skapazt nýtt viðhorf, sem öllum íslendingum er skylt að gera sér grein fyrir. Það er orðið eins Ijóst og verða má, að dvöl erlends Tímarit Máls og menningar, 2. h. 1954 8
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.