Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Blaðsíða 17

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Blaðsíða 17
VANDAMÁL SKÁLDSKAPAR Á VORUM DÖGUM 127 ■ég telja T. S. Eliot mestan raunsæismann, meira að segja það mikinn að hafi maður aðeins verið fastur lesandi að The London Times í 25 ár, þá skilur maður kveðskap hans undireins, skýríngalaust. í skáldskap sem ber merki síns tíma, skáldskap sem runninn er af rót- um þess veruleiks sem býr í öldinni, þar eru mannlýsíngarnar ekki endi- lega speglun þess fólks sem vér höfum fyrir augum daglega, heldur eru þær umfram alt speglun eða réttara sagt líkamníng á hugsjónum aldar- innar. Þjóðfélagsleg raunsæisstefna, sem oft ber á góma í Ráðstjórnar- ríkjum og víðar, er ekki umfram alt sú stefna sem miðar að nákvæmri •endurspeglan þjóðfélagsins í listum, heldur er hún oftar nær því að spegla þann raunveruleik sem menn leitast við að skapa undir samvirk- um þjóðfélagsháttum og með sósíalisma. Valt er að trúa því að hinar fullkomnu sagnapersónur úr sígildum bókmentum íslands, Íslendínga- sögunum, líkist þeim „fyrirmyndum“ sem þær þykjast endurskapa, og samkvæmt sögum þessum eru taldar hafa verið á lífi milli fjórðúngs og helmíngs úr árþúsundi áður en bókin var samin; og vart mundi sanni nær að ímynda sér að höfundarnir hafi verið samvistum við þessar per- sónur eða þvílíkar; eingin sagnfræðileg gögn eru til um það, enda eingin gild ástæða til að ætla, að nokkru sinni hafi til verið í raun og veru manngerðir þvílíkar sem höfuðpersónur Njálu, svo sem Gunnar, Hall- gerður, Njáll, Bergþóra, Skarphéðinn, hvorki á samtíð höfundar undir 1300 eða — og því síður — 250 til 350 árum áður, á tíundu öld og að upphafi hinnar elleftu, þeirri öld sem Njáls saga læst vera hennar skugg- sjá. Sama máli gegnir um Gretti Ásmundsson, aðalpersónu Grettis sögu. Það er ekki heldur ástæða til að ætla að Olafur helgi, einsog Snorri sér hann, ellegar hetjur þær aðrar sem umhverfis standa þennan öndvegis- höld, hafi nokkru sinni til verið líkt því sem sagan segir, og ekki fremur á tímum Snorra en einhverri öld þaráundan. Samtsemáður er erfitt að benda á bókmentir sem eftir formi sínu og efni hafi verið raunhæfari í áhrifum en þær þrjár íslenskar skáldsögur frá miðöldum sem ég nú nefndi, Brennunjáls saga, Grettis saga, Ólafs saga helga. Um Njál, Gretti og Ólaf helga vitum vér það eitt að þessar persónur eru til í bókum sem sannanlega eru af skáldskapartagi, eða að minsta- kosti jafnnærri því að vera skáldskapur og nokkrar bækur geta verið. En hinu gefur auga leið, að úr því svo innvirðulegar lýsíngar manna og atburða hafa til orðið í bókmentum, þá fer ekki hjá því að þar sé nokk-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.