Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Side 43

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1954, Side 43
ÞRÍR Á BÁTI 153 Við höfðum allir raðað okkur á bátinn, Pétur, ég og strákarnir, en nú brá svo við að maðurinn í svarta jakkanum lagði frá sér hnífinn og kom niður í vörina til að hjálpa okkur að ýta. Hann gerði þetta eins og ekkert væri sjálfsagðara, og Pétur þáði aðstoð hans eins og ekkert væri eðlilegra, og kom mér þetta dálítið á óvart eftir allt sem á undan var gengið, en svo skildi ég að hér var um að ræða þau fornu lög sem ríkja ofar öllurn leynisamningum, ofar öllum Mórum, allri keskni, hin óskráðu lög íslenzkra sjómanna um gagnkvæma hjálp við ýtingu og uppsetningu báta, lögin sem frá öndverðu hafa verið stjórnarskrá Selsvarar. En strax og báturinn var kominn á flot, sneri Pétur sér að manninum í svarta jakkanum og sagði: „Það er nú ráð mitt að þú hafir hjá þér þinn eigin Móra, meðan við förum út að sækja gnóttir hrokkelsa eins og Guði þóknanlegir menn. Enda mun þér ekki af veita aðstoð hans við að flaka grásleppuna, þó hann sé án efa örvhentur eins og húsbóndinn.“ Maðurinn í svarta jakkanum fór þegjandi upp á klappirnar aftur og hélt áfram að flaka grásleppuna með vinstri hendi. Og þegar við vorum komnir vel út úr vörinni og gátum tekið stefnuna beint á miðin, þá sagði Pétur: „Sannaðu til, þó mínir fætur kólni, Móri er með. Ég finn það á mér. Og er ekki séð fyrir endann á þessum róðri.“ — Setti síðan á fulla ferð. * Mér veittist sá heiður að stýra út, en Pétur sat á miðþóftu, horfði fram og kvað rímur. „Birtings mela essum á orku vel með knáa, Stóra-Seli sækjum frá sjós á hvelið bláa.“ Hann vísaði mér stefnuna með snöggum bendingum, og ég lét vinstri öxl hans miða í Snæfellsjökul en þá hægri í endann á Akrafjalli. „Byljur sungu banaraust brims í þungum kalda; ára lunga hrakti hraust heli þrungin alda.“

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.