Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Page 32

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Page 32
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ur að e'ðlisfari. Hann var hamhleypa til skrifta, frjór fram úr hófi og helzt til óvand- virkur eins og oft vill brenna við hjá þess háttar höfundum. Hann hafði hvorki tíma né skap til að blanda geði við ókunnuga. Erfitt hefði verið að ímynda sér hann í skeggræðum við Alexander Wooilcott, Ge- orge Kaufman og sálufélaga þeirra inni á Algonquin-hótelinu. Ilann fór sjaldan í leikhús, eftir að hann fór sjálfur að semja leikrit fyrir alvöru, og þótt hann hefði einlægan áhuga á leik- stjórn og öllu ])ví, sem laut að ytra búnaði sjónleikja, þá fylgdist hann lítið með æf- ingum á sínum eigin verkum, nema ef til vill síðustu ár ævinnar. Af þessu verður bezt séð, að hentugasta og reyndar eina leiðin til að kynnast list og lífstefnu O’ Neills að gagni er að snúa sér beint til leik- rita hans, sem eru bæði mörg og mikil að vöxtum. f stað þess að telja upp verk 0’ Neills og gera lauslega grein fyrir þeim öllum, tel ég heppilegra og fróðvænlegra fyrir alla að fara mörgum orðum um fáein þeirra en fá- einum orðum um þau öll. Sakir þess að fjöldi merkra mennta- manna og listdómara álíta Elektru ágæt- asta leikrit 0’ Neills skulum við fyrst taka það til athugunar. Höfundur sækir efnið í frægan þríleik, Óresteia, eftir eitt af stór- skáldum Forn-Grikkja, Aiskylos. í öllum höfuðdráttum er ytri gerð leiksins, sögu- þráðurinn sá sami og í frumverkinu. 0’ Neill breytir að vísu nöfnum leikpersón- anna, flytur þær í nýtt umhverfi og færir í unglegri gervi, sem koma nútfmamönn- um kunnuglegar fyrir sjónir en forngervi Grikkja. Það er ekki úr vegi að geta þess hér, að Frökkum, sem eru manna ófeimn- astir að taka viðfangsefni að láni úr bókmenntum annarra þjóða, ekki sízt Grikkja, þætti slíkar yfirborðsbreytingar ekki aðeins hégóndegar heldur líka óheið- arlegar, þar sem allar breytingar þeirra myndu miða að innri gerð leiksins en ekki þeirri ytri. Ekki væri réttlátt að segja, að 0’ Neill breyti engu nema nöfnunum einum saman, en að þeim breytingum verð- ur síðar vikið í þessari grein. Nú skulum við snúa okkur að leiknum sjálfum og rekja efni hans í stórum drátt- um. Fyrsta atriðið gerist fyrir framan hús Mannons, hershöfðingja, sem er sama per- sóna og Agamemnon í gríska leiknum. Borgarastríði Bandaríkjamanna er nýlokið og Ezra Mannon er á heimleið frá vígstöðv- tinum, þar sem hann hafði getið sér góðan orðstír ekki síður en í styröldinni við Mexí- kana 1845—46. Það er einnig von á syni hans, Orin, sem er hálfgerður nafni Órestes í Óresteiunni. Mæðgurnar, Klýtemnestra og Elektra, sem heita Kristín og Lavinia hjá 0’ Neill ala bæði tortryggni og heift í brjósti hvor til annarrar. Lavinia ber hins vegar hlýrri tilfinningar til Adams Brants, skipstjóra nokkurs, sem er óskilgetinn son- ur afabróður hennar og franskrar þjónustu- stúlku og gegnir sama hlutverki og Aigisþos hjá Aiskylos. Lavinia, sem er venjulega kölluð Vinnie í leiknum, kemst að ægilegu leyndarmáli um móður sína, er eftirfarandi atriði varpar fullu ljósi á: lavinia: Hættu nú að ljúga! Eg fór upp á loft! Ég heyrði þig segja við hann — „Ég elska þig Adam“ — og kyssa hann! — Þú auðvirðilega! — Þú ert blygðun- arlaus og illa innrætt. Ég segi það, þótt þú sért móðir mín. christine: Ég vissi, að þú hataðir mig, Vinnie — en grunaði þó aldrei að hatur þitt væri svona takmarkalaust! — Jæja, ég elska Adam Brant. Hvað ætlarðu þér að gera? lavinia: Hvemig geturðu sagt þetta svona blygðunarlaust? Þú ert ekki mikið að hugsa um hann pabba — sem er svo góð- 110
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.