Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Side 84

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Side 84
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR sinna. Napóleon trujlar áœtlanir þeirra með alvöruleysi sínu og þrekleysi og þeir losa sig við hann. Eftir 1933 talaði liann um skoplegan Napóleon, sem nota mælti til að spottast að Hitler. En eftir Nútímann kom fimmti Napóleon hans fram í nýrri mynd. Keisar- inn flýði frá St. Helena og birtist í heimi sem var honum gersamlega framandi, í Evrópu fjárplógsmanna og kaupmanna. Hvarvetna mœtir hann tortryggni og andúð, lýkur lífi sínu sem gamall flakkari og fylg- ist með hátíðahöldunum þegar kista hans sjálfs er flutt heim. Þegar vikið var að Benító Mússólíni í samhandi við áform hans um Napóleon, svaraði hann 1931: „Einræðisherrar nútím- ans eru leikbrúður í höndum stóriðju og fjármálavalds." Eftir 1933 notaði nýr einræðisherra af þessu tagi, Adólf Hitler, aðferðir nazismans til þess að vinna bug á efnahagskreppu þeirri sem lýst var í Nútímanum. Foringinn bjó sig undir styrjöld af öllu afli með að- stoð stóriðju og fjármáiavalds, og það hafði í för með sér algera hagnýtingu á þýzka iðnaðinum. En til lengdar gat ekki setið við framleiðsluna eina saman. Það varð senn að nota hana í verki. Er Chaplín var að undirbúa „sjöttu mynd“ sína, voru vopnaviðskipti annarrar heimsstyrjaldarinnar þegar hafin á Spáni. Herir Mússóiínis og Hitlers tóku opinskáan þátt í horgarastyrjöldinni við hlið Francós. I viðræðum við vini sína dró Chaplín enga dul á samúð sína með lýðveldissinnum. Árás Japana á Kína árið 1937 hafði einnig rík álirif á hann, og síðan stóratburðir þeir sem ráku hver annan í Evrópu: Innrás Hitl- ers í Austurríki, Miinchen-svikin, hernám Tékkóslóvakíu í tveinmr áföngum. Þessir sögulegu viðburðir áttu eftir að speglast í „sjöttu mynd“, en nafni hennar og efnisvali var lengi haldið leyndu. Chap- lín fór að vinna að kvikmyndasögunni árið 1938 í Carmel-by-The-Sea. Hann bjó mán- uðum saman ásamt Paulettu Goddard í þessum litla hafnarbæ í nánd við St. Fran- cisco. Eldri synimir, sem hann hafði eign- azt með Litu Gray, konui stöðugt að heim- sækja föður sinn og höfðu miklar mætur á honurn. Myndin átti eftir að breytast stig af stigi þar til komið var að endanlegri gerð: Ein- rœðisherranum. Chaplín réð sjálfur yfir framleiðslutækjum sínum og gat því enn leyft sér að beita hinum sérkennilegu vinnu hrögðum sínum. Yfirleitt er myndataka haf- in þegar húið er að ganga frá „myndatöku- áætlun", handriti sem mælir fyrir um ákveðin vinnubrögð sem leikstjórinn verður að fylgja út í yztu æsar, ef ekki er um hreina smámuni að ræða. Chaplín leyfði sér þann munað að vinna án þess að hafa nokkra „myndatökuáætl- un“. Hann breytti tali og atburðarás í vinnustofunni sjálfri. Hann tók heilu kafl- ana án þess að vita nákvæmlega hvemig ætti að koma þeim fyrir í sjálfri myndinni. Ilann starfaði eins og rithöfundur, gerði uppkast á uppkast ofan og breytti. I fyrsta uppkastinu að Einrœðisherranum var fanga bjargað úr þrælabúðum af hópi uppreisnarmanna, sem höfðu dulklætt sig sem SA-menn. Gyðingurinn litli, sem var al- ger tvífari Adólfs Hitlers, tók við hlutverki foringjans. Kona sem ætlaði að myrða Hitl- er varð snortin af örvæntingu litla gyðings- ins. Ilún hjálpaði honum að flýja, og þau settust að í Sviss. Enda þótt þessi fyrsta endursögn væri meinlaus (eða höfð svona ónákvæm af ráðn- um hug) létu viðbrögðin ekki híða eftir sér. Þriðja ríkið lét sér ekki lynda að spottazt væri að foringja þess og að „saurugur júði“ væri gerður að tvífara hans. Utanríkisþjón- ustan var sett af stað. Konsúll nazista í Hollywood, Georg Gússling, og síðar sendi- 162
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.