Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1958, Side 15

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1958, Side 15
,ÞAÐ SEM MEST RÍÐUR Á . . sem byrjað var að stíga með þessari samþykkt Alþingis, væri stigið til fulls, þá myndi sú framkvæmd ekki einasta vera okkur, sem byggjum þessa eyju, hin öruggasta hamingju- leið, heldur einnig fögur þjónusta við þau öfl sem óska öllu mannkyni frið- ar og lífs. Við gátum jafnvel hugsað okkur að svo hreint verk sem það að neita með einurð og festu hverskonar hlutdeild og aðild í níðingsverkum og vitfirringu styrjaldar, mætti verða öðrum þjóðum, sem einnig mæðast undir oki erlendrar hersetu, nýtt vonarljós og styrkur og liðveizla við kröfur allra þeirra er væru sama sinn- is og við. Það er vant að sjá hverjir eru til forystu fallnir, og misjafnt hversu menn bregðast við þá er þreyta skal þá raun að standa við loforð sem auð- veldast var að gefa, en átak og dirfsku þarf til að standa við. — Þá fyrst sker úr um manndóm og heiðarleik. Þó fyrirgefst ef menn, óviðráðanlegra or- saka vegna, fá ekki staðið við gefin heit og hafa þó haft alla viðleitni til, og eru þess bærir að gefa þar á fulla skýringu, þá er gild verður tekin. Það að falla undir merki sínu, heldur en snúast til flótta, var um aldur aðeins hetjunnar einnar og tölum ekki um það. Víst er okkur það illilega ljóst orð- ið eftir hrakninginn í herstöðvamál- inu, að við eigum ekki sem stendur þá einurðarmenn í stjórn okkar, sem þora að standa í stormi án priks og hækju. En þeir áttu þá engu að lofa ef þeir kviðu fyrir efndunum strax í upphafi. Því það er siðleysi af verstu tegund ef menn lofa því hástcfum á opinberum vettvangi, sem þeir eru þá þegar ráðnir í að svíkja við fyrsta tækifæri. Slíkur verknaður hlýtur alltaf sjálf- ur að kalla á refsinguna, því þeim er hann fremur treystir enginn framar. 11?

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.