Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1958, Blaðsíða 20

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1958, Blaðsíða 20
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR látur, næstum sljór, en allar skepnur umgekkst hann af miklum skilningi og þær hændust að honum. Ekki veit ég hví hann var kallaður Sveinn dauði, það þótti ekki háttvísi að vera að spyrja um slíkt, en hann var vissulega lifandi og ekkert dauð- yflislegur í átökum sínum. Mér datt helzt í hug að hann hefði legið úti á fjöllum í blindhríð og sterkviðri og menn hefðu haldið hann dauðan þeg- ar hann fannst en svo hefði hann hjarnað við. Og stundum hljóp hug- myndaflugið svo í gönur með mig að ég þóttist viss um að hann hefði fyrr á öldum lifað af svartadauða, þvert ofan í álit manna og öll líkindi. Og ég er ekki enn viss um nema eitthvað hafi verið hæft í þessu hugarflugi, svo var maðurinn forneskjulegur. Okkur kom vel saman, því hann tók oft af mér verk sem ég var of latur til að vinna en ég svaraði aftur fyrir hann fullum rómi ef einhver var að stríða honum eða bera brigður á gáfnafar hans. Þessi samvinna kom báðum vel og þóttist hvor um sig græða á henni. Ég efast um að hann hefði farið þessa ferð í fylgd nokkurs annars, að undanskildum föður mín- um, því hann var tortrygginn gagn- vart manneskjunni í heild, og sýndi það að hann gat lært af reynslunni þó hann væri ekki djúphygginn. Eftir mikla kveðjuathöfn á hlaðinu heima héldum við af stað og heyrðum lengi kallað á eftir okkur heilræði og háðsglósur, en við vorum of sjálf- stæðir ferðalangar til að láta okkur nokkru skipta slíkan hégóma. Skammt fyrir utan kauptúnið sett- umst við og Sveinn tók danska skó upp úr poka sínum og dró á fætur sér í stað kúskinnsskónna sem hann hafði gengið á. Síðan spásséruðum við inn í þorpið eins og hverjir aðrir kaup- staðarbúar. Ég var staðráðinn í því að okkur skvldi takast vel ferðalagið og gera að engu hrakspár og getsakir sumra. Þessvegna hafði ég vakandi auga á Sveini og hátterni hans, og nú varð mér litið á fæturna á honum og sá að hann hafði hægrifótarskóinn á vinstri fæti og þann vinstri á hægri. Ég taldi það eitt af skylduverkum mínum á þessu ferðalagi að koma í veg fyrir að Sveinn gerði sjálfan sig eða heim- ilið hlægilegt með afkáraskap og hrópaði skelkaður: Þú ert á öfugum skónum, Sveinn. Hann virti fyrir sér skóna og svar- aði góðlátlega: Ekki nema öðrum. Ég gat þó talið hann á að skipta um skóna, og að því búnu leit hann aftur á þá og mælti hróðugur: Þarna sérðu, það var bara annar. Það gekk snurðulítið að komast gegnum strákafans kauptúnsins þó ekki skorti hróp og lítilsháttar skít- kast. Svo fórum við um borð í norska skipið og fengum far fyrir lítið gjald hjá skipstjóranum, hvort sem það var heldur að þakka frekju minni að tala 122
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.