Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1958, Blaðsíða 22

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1958, Blaðsíða 22
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR minnkun útaf getuleysi mínu á þessu örlagaríka ferðalagi. Sveinn kom þó tveimur hásetunum undir og sló hausum þeirra allóvægi- lega niður í þilfarið, en sá þriðji sparkaði í hann með stígvéluðum löppunum. í þessu kom stýrimaður aðvífandi og spurði Hva Fanden gengi hér á. Eg flýtti mér til hans, togaði í ermi hans og benti honum á köttinn og sagði að hásetinn hefði fleygt honum í sjóinn og þessvegna hefði Sveinn lent í áflogum, annars væri hann al- veg meinlaus. Til allrar hamingju hlustaði stýri- maður á vörn mína fyrir félaga minn og spurði: Átti hann köttinn? Ég gat ekki fullyrt það. Hann skipaði áflogahundunum hranalega að hætta og urðu þeir að hlýða yfirboðaranum þó þeim væri það sýnilega nauðugt. Svo flýtti hann sér upp á brú til skipstjóra. Eftir stutta stund stöðvaðist skipið og mönnuðum báti var skotið út. Mönn- unum tókst giftusamlega björgunar- starfið og náðu kettinum áður en hann drukknaði. Þegar þeir komu með hann upp á skipið tók Sveinn hann af þeim og dugðu engin mótmæli. Hann tróð honum eins og hann var, rennandi blautum, inn á sig og hneppti að sér vaðmálstreyjuna þannig að hausinn á kisu stóð útúr á milli hnappa. Svo gekk hann afturá, greip á leið sinni járnflein sem lá á þilfarinu, studdi baki að borðstokknum og mundaði vopnið. Það var auðséð að hann ætl- aði að selja líf þeirra kisu dýru verði. Síðan var ferðinni haldið áfram, skipið eimdi út fjörðinn á fullri ferð og allt virtist í röð og reglu og slétt á yfirborðinu. En ég efaðist ekki um að undir niðri sauð heift og hatur hjá þeim sem töpuðu orrustunni, ég sá það á svip þeirra og augnagotum. Um Svein treysti ég mér ekki að dæma, hafi nokkurt hafrót átt sér stað í sálar- djúpi hans sást það ekki á svipnum, hann var útþurrkaður eins og venja var til. Eftir tvo klukkutíma vorum við komnir á áfangastað. Þegar búið var að setja landganginn fleygði Sveinn járninu og ætlaði á land. Einn háset- inn greip til hans og skipaði honum að fá sér köttinn, for Fanden. Ég held ég hafi aldrei séð Svein dauða flýta sér meira í eitt skipti en annað, það var eins og hreyfingar hans væru stilltar á vissan hraða. Ég var því alveg undrandi þegar hann, með snöggu viðbragði, hratt norð- manninum svo hann tók stór bakföll og hafnaði loks sitjandi á þilfarinu, en hljóp með kisu niður landganginn og upp alla bryggju. Ég náði honum ekki fyrr en uppi í þorpinu og þá héldum við heim til ættingja hans. Hann gaf enga skýringu á hinum rennvota félaga sínum og varð ég að 124
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.