Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1958, Page 28

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1958, Page 28
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Hsia Yen og Cheng Cheng-tou, varamenntamálaráðherrar Kína, ásamt Halldóri og Auði Laxness. klæða alla borgara sína, svo og sjá þeim fyrir svefnstað. Hún er ef til vill eina kommúnistastjórnin sem hefur á einni nóttu að heita má, að vísu íburðarlaust, látið rætast draum kommúnismans um að sjá öllum fyr- ir óhjákvæmilegustu lífsnauðsynjum, næstum því án endurgjalds. Fæði handa einum manni kostar í Kína frá 5 til 7 dollara á mánuði, og bómullar- jakki og buxur, einkennisbúningur allrar þjóðarinnar, sem endist í heilt ár, kostar líka 7 dollara. Allir vinna og fá kaup. í öðru lagi: á þúsunda kílómetra ferðalagi í Kína, þar sem ég sá hundr- uð þorpa og dvaldist í nokkrum stærstu borgunum, varð mér ljós sú staðreynd, sem hvergi þekkist annars staðar í Austurlöndum, að betl fyrir- finnst ekki í neinni mynd eða gervi í landinu; því fer svo fjarri að það sé til, að jafnvel smávegis vikaþóknun er hafnað skilyrðislaust. I þriðja lagi skal því ekki gleymt að eftir því sem ég hef komizt næst, er hið rauða Kína eina þjóðfélagið í Asíu sem ekki aðeins fæðir borgara sína og klæðir og lætur þá hafa nóg að gera; heldur einnig eina ríkis- 130

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.