Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1958, Blaðsíða 61

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1958, Blaðsíða 61
ATHUGASEMDIR UM BREKKUKOTSANNÁL an hann skorti menningu, þá getur „búðin“ ekki komizt af án menning- ar, og því leggur hún fram fé í fyrir- tækið Garðar Hólm. Því í augum Gúðmúnsens, í augum búðarinnar, er Garðar Hólm eins og hvert annað fyr- irtæki sem krefst fjárfestingar. Og myndin væri ekki sönn ef fyrirtækið menning væri ekki látið sitja á hakan- um, það kemur ekki til greina fyrr en á eftir öllum hinum fyrirtækjunum. Hvenær kemst „búðin“ að því að Garðar Hóhn er gjaldþrotsfyrirtæki? Það er ekki fyllilega ljóst, í þessari bók er ekki allt ljóst frekar en í lífinu sjálfu. En „búðin“ má ekki við því að viðurkenna að hún hafi misreiknað sig í menningarfyrirtækinu, hún reynir að minnsta kosti að skjóta þeirri játningu á sem lengstan frest. Garðar Hólm skal syngja fyrir páf- ann og keisarann. Og þjóðin skal trúa því. Og trúir því. Ég held ég megi segja að það sé aðeins einn maður ut- an innsta hrings búðarinnar, sem veit betur, það er forsöngvarinn. En hann gætir þess að láta ekkert ákveðið uppi um vitneskju sína, honum er fjarri skapi að fara í stríð við þjóðfélagið. Það er óþarfi að láta hina lágu tón- tegund Brekkukotsannáls villa sig: í honum sætir íslenzk borgarastétt eink- anlega, og borgarastéttin yfirleitt, ein- hverri þyngstu gagnrýni sem nokk- um tíma hefur komið frá hendi Hall- dórs Kiljans Laxness, og hefur hann þó löngum verið óspar á þá gagnrýni í ritum sínum. Hér er gagnrýninni beint að blekkingavaldi þessarar stétt- ar; ég vil taka dýpra í árinni: Brekku- kotsannáll er framar öllu öðru bókin um mátt borgarastéttar til að slá ryki í augu alþýðu og nota sér góðlyndi hennar og trúgirni. Þetta borgaralega blekkingavald og varnarleysi alþýðu gegn því, já mér liggur við að segja vilji alþýðunnar til að láta blekkjast, — var þegar tek- ið til meðferðar í Atómstöðinni. Það er jafnvel ekki fjarri sanni að segja að BrekkukotsannáU sé að þessu leyti útlegging -— mutatis mutandis — á einni málsgrein í Atómstöðinni, er svo hljóðar: Auðvitað skipuðu þeir okkur í lög- reglunni að haja til táragasið og ann- að sœlgœti handa fólkinu, sagði hann. En fólkið gerði ekki neitt. Fólkið er börn. Því er kent að glœpamennirnir búi við Skólavörðustíg en ekki Aust- urvöll. Það linast kanski í þeirri trú stund og stund, en þegar stjórnmála- menn eru búnir að sverja nógu oft og liúrra nógu leingi, þá fer það að trúa aftur. Fólk hejur ekki ímyndunarafl til að skilja stjórnmálamenn. Fólkið er of saklaust. Onnur hlið á þessu fyrirbæri er sú afmönnun mannsins í þágu þessar- ar sömu stéttar, það purkunarleysi sem lítur ekki á manninn sem mann heldur sem áhald, eða öllu heldur, í Brekkukotsannál, sem fyrirtæki. Sú free-enterprise-auglýsingablessun 163
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.