Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1958, Síða 64

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1958, Síða 64
TIMARIT MALS OG MENNINGAR þeim gamla skilningi orðsins colonia, og síðar í þeim skilningi sem nú er frekar lagður í orðið: undirokuð þjóð, arðrænd þjóð. „Að sigla“ og „að vera sigldur“ eru orðatiltæki sem stafað hefur af miklum Ijóma í augu íslendinga. Sjálfsagt með miklum rétti hefur eng- inn verið talinn maður með mönnum nema hann hafi verið „sigldur“, en þessi brýna nauðsyn okkar til að fara burt hefur líka orðið tilefni einkenni- legra hugaróra og óraunsæis. í þeim hugarórum hefur blandazt saman sú skoðun að enginn er maður með mönnum ef hann er ekki „sigldur“ (stundum hefur þetta snúizt við: allir eru menn með mönnum ef þeir aðeins eru sigldir), og sá draumur að íslend- ingurinn sem kemur með ókunnum þjóðum hljóti vegna mannkosta sinna að vinna sér undireins hið fremsta sæti, fyrirhafnarlaust. Nú hefur það komið fyrir, sei sei, að íslendingar hafa unnið sér hin fremstu sæti með erlendum þjóðum, þó það hafi varla nokkurn tíma verið án fyrirhafnar. En ég hygg að þessi ævintýrasýn um karlsson sem vinnur konungsríkið hafi oftar orðið til ills en góðs, bæði fyrir einstaklinga og alþjóð. Hve margir hafa þeir íslendingar verið sem aðeins voru „frægir erlendis“ heima á íslandi. Og allmargir meðal- menn hafa bókstaflega notað sér trú- girni þjóðarinnar, komið heim með ljóma heimsfrægðar sem ekki var til nema í þeirra eigin ímyndun og notið virðingar á Islandi. Um þessa manngerð eru sagðar sögur, sem fyrr á tímum hefðu orðið þjóðsögur, og hún er síður en svo óþekkt í íslenzkum nútímabókmennt- um. Það væri vissulega lærdómsríkt rannsóknarefni fyrir bókmenntafræð- ing að athuga útbreiðslu þessa miles- gloriosus-mótífs í íslenzkum bók- menntum; raunar mundi viðfangsefn- ið vera girnilegt þó það væri ein- skorðað við verk Halldórs Kiljans Laxness. Það væri vantraust á íslend- inga að halda því fram að þeim sé ekki ljóst hvað kímilegt er í fari þess- ara söguhetja. En slíkur klofningur veruleikans getur líka orðið sorgar- saga, og það er hann í Brekkutcots- annál. Raunar má segja að hann sé það einkum vegna þess að Garðar Hólm er leiddur út í leikinn nauðug- ur viljugur, það er hans glíma við ör- lögin sem tekið hafa á sig áþreifan- lega mynd í nafni Gúðmúnsensbúðar. En sé hinni þjóðfélagslegu merkingu þessa harmleiks sleppt í bili þá má sem sagt líta á Brekkukotsannál sem gagnrýni á þeirri hlið íslenzkrar þjóðarskapgerðar, ef svo má að orði komast, sem ég var að reyna að lýsa. Þeir sem vilja geta talið að sú gagn- rýni sé ekki tímabær lengur, ég fyrir mitt leyti held að hún sé það enn. Ég sagði áðan að það væri freistandi að líta svo á að „stórheimur“ Brekku- kotsannáls væri ísland eitt. Við höf- 166

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.