Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1958, Qupperneq 68

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1958, Qupperneq 68
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR unni aj því það haji komið uppúr dúrnum að hún er jarteikn rángra líjsskoðana og mundi koma mönnum að betri notum sem hestarétt? Þvílíkt dœmalaust slys að jreir Giotto og Fra Angelico skyldu haja jlœkt sig í fölsku hugmyndakerfi sem málarar, í stað- inn jyrir að halda sér að raunsœis- stejnunni! Sagan um Maríu mey er auðvitað einsog hver önnur skreytni óvandaðra manna; og sá maður svindlari sem leyfir sér að andvarpa: pietá Signor. Þessi síða er óneitanlega umhugs- unarverð, og umdeilanleg. En það væri ef til vill erfitt að ákvarða hvor- um aðilanum höfundur fylgir frekar að málum, Álfgrími sem ætlar að „lifa einsog aungvir draugar væru til“ eða Garðari Hólm sem veit að það getur hefnt sín ef maður skeytir ekki þeim grundvallarsannleik að „mannkynið hefur tilhneigíngu til að trúa draugasögum“. Vegna þessa er Brekkukotsannáll ekki bjartsýn bók, von hans er grírnu- búin. Því mæðurótt umburðarlyndi er fögur mannshugsjón, en það hafn- ar ýmsum enn stærri hugsjónum. Það hafnar til að mynda, ef vel er að gáð, hugsjón réttlætisins. Gerpla er, þó undarlegt kunni að virðast, bjart- sýnni bók, í öllu neikvæði sínu, held- ur en Brekkukotsannáll. Pyrrhonismi, jafnvel þó hann birtist með góðlát- legu brosi, er alltaf hálft í hvoru pessimismi. En svartsýni Brekkukotsannáls er ekki alger. Það er leyndardómur hinna mestu harmleikja að þeir sökkva ekki áhorfandanum niður í djúp vonleysisins: upp úr bölinu rís að lokum ný framtíð. Það var ef til vill þetta sem vakti fyrir Grikkjum þegar þeir töluðu um katharsis. Mig langar til að tilfæra hér ummæli tveggja mikilla gagnrýnenda um þetta efni; enda þótt þeir standi algerlega á öndverðum meiði í andans ríki hygg ég að skoðanir þeirra kunni að fá birtu hvor af annarri, og hvor þeirra um sig muni bæta upp það sem hinni er ábótavant. Georg Lukács kemst svo að orði á síðustu síðum ritgerðar sinnar, Die Tragödie der modernen Kunst (sem fjallar um Doktor Faustus Thomasar Manns): í mestu harmleikjum Shakespeares skín að lokum Ijós nýs heims, sem rís úr hinum tragísku myrkrum. Og hver getur krajizt þess að Shakespeare láti í té nákvœma þjóðfélagslega lýsingu á þessum nýja heimi? Er ekki nóg að sýn þessa heims er þess megnug að já Ijósi og skugga harmleiksins rétt Jijóðfélagsleg, andleg og listrœn hlut- föll og þýðingu. Hin ummælin eru eftir Nietzsche: / Ödípusi í Kolonos sjáum við þessa sömu gleði (gagnvart hinni díalekt- isku lausn atburðaflœkjunnar), en hér er hún sýnd í óendanlega skœru 170
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.