Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1958, Blaðsíða 73

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1958, Blaðsíða 73
UMSAGNIR UM BÆKUR son) Nordal á undan Sigurði Jónssyni, Jón (Jónsson) úr Vör á undan Jóni Loftssyni (hálfum dálki framar en hann ætti annars að vera), o. s. frv. — En slíkum smátíningi af aðfinnslum má vitanlega lengi halda áfram, og rýra þær þó í litlu heildargildi bókarinnar. Hafi Stefán þökk fyrir þetta rit sem önn- ur er hann hefur samið til að gera íslenzk fræði aðgengilegri, ekki sízt útlendingum! Á. B. Guðmundur Frímann: Söngvar frá sumarengjum. Útgáfan Dögun, Akureyri, 1957. að er óvenjulegt, að heiti kvæðabókar segi til um innihaldið. En Guðmundur Frímann er skáld árstíðanna og yrkir þó oft- ast um sumar og haust. Hann er sveitamað- ur í sér og gengur í huganum á teig heima í dalnum, þar sem hann sleit barnsskónum. Bókin ber því réttnefni, og er það góð til- breyting. „Svört verða sólskin" hét næstsíðasta bók Guðmundar, og þótti þá mörgum sem hann hefði þokað sér all-framarlega í fylkingu góðskáldanna. Sannarlega er hún indæl bók og í henni nokkur forláta-kvæði, sennilega þau beztu, sem skáldið hefur ort. Ég er ekki viss um, að „Söngvar frá sumarengjum" standi henni á sporði, og þó má hitt réttara vera, að nú þyki lesandanum aðeins skorta á nýjan tón, fjölbreyttari yrkisefni. „Nýir siðir með nýjum herrum" er regla, sem líka má hafa til hliðsjónar, þegar nýjum bókum er hleypt af stokkunum. En fylgjum nú skáldinu um stund á göngu þess: Sunnan af engjum blærinn ber blómangan heita að vitum. Blessaður fífuflóinn er fannhvítur yfirlitum. Leika sér síglöð sílisböm saman í ferginspytti. Stendur í grænni stekkjartjöm störin vot upp í mitti. („Sumarkvæði"). Og í „Kóngsbænadagskvæði", einu bezta ljóði bókarinnar, er þetta erindi: Mjúkt um heiði og háfjöll himinbláminn vefst, breytir þeim í bláfjöll bæði neðst og efst. Áin kveður rámri raust rímu sína í giljum, — stígur hún í hyljum hringdans endalaust. Nokkur kvæðaefni em sótt í gamlar heim- ildir — um mann, sem fórst í Blöndugljúfr- um; annan, sem var brenndur á Alþingi; þriðja, sem varð úti í Norðurárdal, og um Selbelgju-syni. Ekki tekst skáldinu í þess- um kvæðum að hrífa hug lesandans með sér sem skyldi, nema ef vera kynni í hinu síðasttalda, þar sem óljóst grillir í harmleik um glæp og refsingu dýpst niðri í myrkra- veröld miðaldanna. Eitt erfiljóð er í bókinni og hefði að ósekju mátt sleppa því. Það er ekki öllum skáldum gefið, eins og Bjarna, Jónasi og Matthíasi, að fljúga hvað hæst í þeim kveð- skap. Eins og fyrr á Guðmundur Frímann það til að yrkja skemmtileg ástaljóð. „Kvæðið um Gullinkollu“ er ef til vill haglegasti smíðisgripurinn í þessari bók, listavel kveð- ið og undarlega samantvinnað úr mörgum og mislitum þráðum. Mikill ljóður finnst okkur Sunnlending- um það á ráði þessa ágæta skálds, hversu mjög það yrkir við hæfi þeirra, sem rugla saman hv og kv, svo að notuð séu orð Jóns Helgasonar um það hvimleiða fyrirbæri. Þórarinn Guðnason. 175
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.