Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Side 27

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Side 27
BÓKMENNTIR í BLINDGÖTU mestu óleyst, iðnvæðingin varla hafin þrátt fyrir geysimikla efnahagsaðstoð erlendis frá.) Tíminn sjálfur virðist hafa annað eðli og gildi í sósíaliskum þjóðfélögum en hinum kapítaliska heimi. Þessvegna er ég ekkert banginn við að fullyrða: að liðnum tíu árum, og jafnvel fyrr, munu vestrænum rithöf- undum opnast dyr inn í framtíðina, sem nú hefur verið þeim lokuð um sinn. Þeir munu aftur verða skyggnir á þau sögulegu rök, sem gerðu marx- ismann að nauðsynlegu vopni á hend- ur kapítalismanum. Bernard Shaw hefur sagt: „Jafn- skjótt og við trúurn ekki lengur því, sem við höfum trúað til þessa, upp- götvum við ekki einungis fjölda stað- reynda sem mæla gegn hinni upphaf- legu trú, heldur einnig að þessar stað- reyndir hafa ævinlega verið rétt við nefið á okkur.“ Það mun koma á daginn, þegar áróðursblekkingar kapítalista hafa orðið sér til háðungar, að hinn blóð- ugi ferill kommúnismans fram til sig- urs yfir hinum sönnu böðlum mann- kynsins var hin eina færa leið. Einnig rithöfundum mun skiljast að húman- isminn er afstæður eins og öll önnur hugtök, og því víðtækari sem hann nær til stærri heilda og ber varanlegri ávöxt. Að þyrma böðlum, vegna þess að einnig þeir eru menn, og ofurselja þannig milljónir varnarlausra og hálf-skynlausra manna kúgunarvaldi þeirra um alla framtíð -— það er falskur húmanismi, ranghverfa mennskrar samúðar, ef ekki hreinn glæpur. Þetta mun rithöfundum m. a. verða ljóst. Og þeir munu skilja til fulls, að ef beitt var hörku og mann- úðarleysi á Stalínstímabilinu í Rúss- landi, þá liggja rök þeirrar grimmdar ekki í kenningum eða eðli konnnún- ismans, heldur þeim þróunarskilyrð- um sem kapítalisminn hefur veitt fyrsta alþýðuríki heims: vagga þess var mennskar og veraldlegar rústir hrunins keisaraveldis, þar sem grimmilegasta einræði hafði ríkt um aldir; og áður en kommúnistar gátu hafið hið nauðsynlega uppbyggfngar- starf urðu þeir að hrinda af höndum sér síendurteknum innrásum erlendra leiguherja, sem auðvaldsheimurinn atti gegn þeim í full fjögur ár. Þegar uppbyggingin loks gat hafizt var engu til að dreifa af fjármunum, efniviði eða reynslu, og sízt aðfengnum lánum eða aðstoð í neinni mynd — engu nema hörku og einbeitni og sigur- vilja. Þá þrjá eiginleika lagði auð- valdið forystumönnum alþýðuríkis- ins upp í hendurnar, það var tillag þess til sósíalismans. Þegar mikið er í húfi -— og hér var allt í húfi! — duga engin vettlinga- tök. Og það er einsýnt, að ef veik- lundaðri maður en Stalín hefði stjórnað þessu víðlenda ríki á örlaga- árum sósíalismans, hefði nazistunum tekizt áform sitt, og ef til vill væri TÍMARIT MÁLS OC MENNINCAR 17 2

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.