Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Page 62

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Page 62
TÍMARIT MÁLS OG MENNINCAR mönnum íslenzkum á fyrra hluta 12. aldar verið fullkunnugt um, að Skot- land hét þá Alba öðru nafni, enda koma ýmsar myndir þess fyrir í latn- eskum ritum, auk þess sem írskumæl- andi íbúar landsins nefndu það svo. Heitið Alba var af eðlilegum ástæð- um sett í samband við latneska orðið albus (hvítur), enda mun það vera af sömu rót runnið. Á máli lærðra ís- lendinga var því ekki óeðlilegt að kalla Skotland Hvítramannaland eftir íbúum landsins. Nafnið Hvítra- mannaland er því eins konar gáta, og minnir hún á tvennt: íslenzkar þýð- ingar útlendra staðaheita og einnig á það, hversu íslenzk fornskáld beittu stundum orðaforðanum í leik sam- beita. Höfundur nafnagátunnar lét þó fylgja með skýringu: Hvítramanna- land heitir írland hið mikla öðru nafni. Það heiti er að sjálfsögðu myndað á sama hátt og lærða nafnið Svíþjóð hin mikla, sem notað var um Skyþiu. En augljóst er, hvað fyrir höfundinum vakir. Lönd þau, sem vér köllum nú írland og Skotland, áttu sér sameiginlegt heiti um hríð, og bæði voru kölluð Scotia á máli lærðra manna, og íbúar landanna, sem mælt- ir voru á írska tungu, voru kallaðir Scoti. Irland hið mikla er notað í merkingunni Skotland á sama hátt og heitið Skotland var tvírætt og notað um bæði löndin. Þetta fyrirbæri var kallað ofljóst í skáldamáli, og ætti hverjum manni að vera það fullljóst nú. Nú fer það að verða skiljanlegra, hvers vegna sögnin um afdrif Ara Mássonar barst hingað til lands frá Orkneyjum. Þorfinnur jarl hefur haft sannar sögur frá Skotlandi um örlög Ara. Hinir íslenzku heimildarmenn Þorkels Gellissonar hafa sagt honum, að Ari hefði borið beinin í Skotlandi, og svo hefur Þorkell sagt Ingimundi. En hinn lærði prestur og fræðimaður lét sér það ekki nægja. Hann vildi ekki láta menn halda, að Ari Másson, forfaðir hans hefði verið hnejrptur í þrældóm á Skotlandi, eins og sagt er um Þorvald í Hænsa-Þóris sögu. Ingi- mundur felur því nafnið á Skotlandi í gátunni Hvítramannaland, en lætur þess þó getið, að það sé kallað írland hið mikla öðru nafni, og var lærðum mönnum engin ofraun að leysa þá gátu. En Ingimundur lét sér það ekki nægja að kalla Skotland Hvítra- mannaland. Hann hnikar Skotlandi heldur myndarlega til á landabréfinu og lætur liggja sex dægra siglingu vestur af írlandi og vera í námunda við Vínland hið góða. Slík tilfærsla er ekki eins dæmi. Svipað kemur fyrir í Eyrbyggja sögu, þar sem sagt er frá Birni Breiðvíkingakappa. Björn fer úr landi, og síðan spyrst ekki til hans um langa hríð. En alllöngu síðar fer breiðfirzkur farmaður í kaupferð til Dyflinnar og ætlaði þaðan til íslands, 52

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.