Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Síða 85

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Síða 85
ERLEND TÍMARIT heima. Ég verð ekki síður að þola gagnrýni crlendis. Raunar er það svo, að þegar mér er hrósað erlendis, er afturkastið hér heima stundum óþægilegt.“ Eins og til dæmis? „Þegar mér er lirósað á röngum forsend- um. Svo virðist sem sumum mönnum er- lendis finnist að ekki sé hægt að tala vin- sandega um mig nerna ég sé um leið stimpl- aður sem óvinur lands míns. Ég hef raunar nú um nokkurt skeið haft áhyggjur út af því háttalagi nokkurra út- gefenda lijá ykkur þegar þeir gefa út hók eftir Sovétrithöfund að kynna bókina sem eitthvað allt annað en hún er — og höfund- inn líka. Þeir birta formála án leyfis frá höfundinum — formála sem gefur í skyn að höfundurinn heyi með bók sinni hug- prúða baráttu við allt þjóðfélag sitt eins og það leggur sig. En þetta á sér ekki einungis stað í Bandaríkjunum. Fyrir nokkrum árum var gefin út eftir mig bók í Danmörku, og hún var ranglega básúnuð sem árás á lífið í Sovétríkjunum. Ég get fullvissað yður um, að þetta jók ekki á vinsældir mínar í landi mínu. Þegar bók mín „Þeyr“ kom út í London sendi enski útgefandinn mér skeyti og sagði að amerískur útgefandi óskaði eftir leyfi til að gefa bókina út í Bandaríkjunum. Ég svaraði með bréfi og sagði honum að gefa ekki neitt slíkt leyfi nema við hefðum samning upp á að ekki yrði prentaður neinn formáli eða inngangur án míns samþykkis. Ef bók mín væri þess virði að gefa hana út, þá væri það vegna þess sem í henni væri. Síðan væri það lesendanna að dæma. Ég kærði mig ekki um að láta neinn, sem stjórnaðist af annarlegum sjónarmiðum, kynna mig. Ameríski útgefandinn gekk að skilyrðum okkar og samningur var gerður. Bókin kom út í Bandaríkjunum. Það var enginn for- máli og engin inngangsorð. En það var eftirnuíli. Eftirmálinn hefði ekki getað ver- ið meira móðgandi frá mínu sjónarmiði. I honum var reynt að gera úr bókinni allt annað en hún var. Þetta var greinilegt brot á anda samningsins. Eftirmálinn hafði ekki verið borinn undir mig. Ég vissi ekki einu sinni að hann kæmi. Hvað á maður að halda um svona hátta- lag? Maður getur ekki varizt ]iví að spyrja hvort amerískum útgefendum sé meira í mun að sýnast andkommúnistar en að rækja skyldur sínar við bókmenntirnar, að ekki sé talað um óbeiðarleikann sem birtist í svona framkomu." Ég sagði Erenburg, að fáir amerískir rit- höfundar og útgefendur myndu mæla bót svona hegðun eins og hann hefði lýst. En ég spurði hann livort ekki væri hugsanlegt að um einhvern misskilning hefði verið að ræða, því að þessi ákæra hans væri mjög alvarleg. „Eg er ekki að setja fram neina ákæru,“ sagði hann vingjarnlega. Ég er að reyna að segja frá því sem gerðist og benda á sum þau vandkvæði sem eru á því að bæta menningarleg samskipti landa okkar. En ég er ekki sár. Eins og ég sagði áðan ætti eng- inn að gerast rithöfundur ef hann getur ekki tekið vonbrigðum eða jafnvel persónu- legum meiðingum." I sambandi við menningarleg samskipti Bandaríkjanna og Sovétríkjanna kvaðst ég þess fullviss, að Erenburg væri kunnugt um óánægju amerískra rithöfunda vegna þess að bækur þeirra eru mjög oft gefnar út í Sovétríkjunum án leyfis. Ég lagði á það áherzlu að ég væri ekki að vekja máls á þessu til mótvægis því sem hann hefði verið að segja um reynslu sína af viðskipt- um við amerískan útgefanda. Fyrir rúmu ári, sagði ég, hefði Adlai Stevenson fylkis- stjóri vakið máls á spurningunni um út- gáfurétt og höfundalaun fyrir amerískar 75
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.