Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Page 90

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Page 90
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR í byrjnn júlí stungn Bandaríkin upp á aS veita Laos liernaðarlega aðstoð. De Gaulle sendi þá aðmírálinn Ortoli til Vientiane og síðan til Washington. 28. júlí var undirrit- aður samningur milli Frakklands, Laos og Bandaríkjanna. Samkvæmt honum fengu Bandaríkin heimild til að veita Laos beina hernaðarhjálp og nokkrum dögum síðar lentu 108 amerískir sérfræðingar í Vient- iane. I júlílok virtist ástandið mjög alvarlegt. 30. júlí lýsti stjórnin yfir því að skæru- sveitirnar væru að öllu leyti vopnaðar og æfðar af N.-Vietnam. í raun og veru er hin „mikla sókn“ harla lítil: níu staðir her- teknir og sex af þeim tók stjórnarherinn aftur hardagalaust. Hin umfangsmikla sókn sem allir töluðu um átti sér ekki stað. 12. ágúst er viðurkennt í opinberri til- kynningu að herstyrkur uppreisnarmanna hafi verið ofmetinn í fyrstu. Það aftraði þó ekki forsætisráðherranum frá að segja dag- inn eftir í bækistöðvum Sameinuðu þjóð- anna, að rannsóknarnefndin, sem þá var rætt um að senda á vettvang, muni ekki hafa annað erindi en halda til landamær- anna, þar sem hún muni fljótlega sannfær- ast um aðstoðina sem Alþýðulýðveldið í Vietnam hafi veitt uppreisnarmönnum. Til allrar hamingu hófu uppreisnarmenn nýja sókn 30. ágúst. Sam Neua (staður í norðurhluta landsins) var að því komin að falla. Blaðamenn símuðu voveiflegar frétt- ir út um allan heim. Herstjórnin tilkynnti að sóknin væri studd stórskotaliði frá N.- Vietnam. 4. september bað Laosstjóm um hernaðarhjálp frá S. þ. Jafnvel Bandaríkja- menn virðast hafa orðið hissa. 5. september tók bandaríska utanríkismálaráðuneytið eigi að síður ásakanir Laosstjórnar gildar í yfirlýsingu þar sem var talað um „öfluga árás sem hefði ekki getað verið gerð án er- lendrar hjá1par“, þ. e. a. s. frá N.-Vietnam. 7. september var þó tilkynnt að Sam Neua félli ekki, og að hin mikla sókn hefði aðeins kostað stjórnarherinn sex menn særða. 16. september kom rannsóknarnefndin til Vientiane. Stjórnin fékk nefndarmönnum skýrslu upp á tuttugu síður, þar sem aðal- lega var lögð áherzla á það, að Pathet-Lao væri kommúnistiskur félagsskapur en ekki þjóðlegur, og tilvera þess ein jafngilti því árás. Nefndarmönnum var sýnt fram á af frábærri kurteisi að mjög erfitt væri að komast til landamæranna sökum slæmra samgangna. Þegar til átti að taka var ekki hægt að grípa til neinna sönnunargagna, hvorki vopna né fanga. Nefndin hélt burt 13. okóber, og gaf mánuði síðar skýrslu sem var lítt hliðholl staðhæfingum stjórnarinnar í Laos. Dvöl eftirlitsmanna frá S. þ. f Laos væri engin lausn á vandanum, sem steðjar að landinu, því þar með væri með nokkrum hætti lögð blessun yfir mistök og glæpi stjórnarinnar. Það er fullvíst að Banda- ríkjamenn vildu gjarnan að komið væri í kring samskonar hreinsun í Laos og í Thai- landi. Þeir gleyma aðeins því að í Laos verður uppreisnin ekki kæfð, að Laos hefur meira en 1000 km landamæralínu sameig- inlega Kína. Alræði hersins í Laos ynni ekki bug á Pathet-Lao. Hinar róttæku að- gerðir sem Bandaríkjamenn dreymir um niundu hleypa af stað borgarastríði í öllu landinu ... Grein Patricks Kessels kom á prent í nóvember eins og fyrr segir. Þess skal að lokum getið að bandaríska utanríkisþjón- ustan mun síðan hafa séð sig um hönd og leitazt við að gera yfirbót fyrir glæfrapóli- tík sína í Laos. Að vísu nokkuð um seinan, því að hershöfðingjaklíka í nánu sam- bandi við einræðisherrann í Thailandi velti stjórninni í Vientiane og hrifsaði til sín völdin um áramótin. s. n. 80

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.