Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Page 22

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Page 22
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR bænda. Flestum þykir þar ekki nægi- lega rösklega gengið að verki, þótt þeir viðurkenni að rétt sé stefnt. Venezúela, hið mikla gósenland, á nú við mikla óáran að etja og er tala atvinnuleysingj a um fj órðungur milljónar. Þegar hinn illræmdi Jimen- ez féll úr valdasessi, ríkti almenn hrifning í landinu og menn ólu djarf- ar vonir í brjósti um róttækar umbæt- ur, en þær vonir hafa dvínað mjög vegna hinnar stuttstígu stefnu Betan- courts. Sterk öfl krefjast langtum rót- tækari aðgerða og vilja fara að dæmi Kúbu, en afturhaldsmenn, einkum innan hersins, hafa ekki getað sætt sig við umbætur hins hægfara forseta og hafa gert tíðar tilraunir til þess að steypa stjórn hans með valdi og jafn- vel reynt að ná lífi hans. Venezúela er í greipum erlendra auðhringa. Fjárfesting bandarískra auðfélaga þar nemur 3000 milljónum dala eða 25% af allri fjárfestingu þeirra í rómönsku Ameríku og hafa hinir voldugu auðhringar náð tökum á auðlindum landsins, málmnámum, olíulindum og lendum. Þar á Rocke- fellerættin dálaglegan skerf. Landið hefur reynzt hinum erlendu félögum hreinasta gullnáma, árið 1958 nam ágóði bandarískra auðfélaga 1200 milljónum dala. Hér hefur aðeins verið minnzt á nokkur ríki í rómönsku Ameríku, en hin eru einnig tröllriðin af sömu vandamálunum. Auður þessara landa rennur til fámennra yfirstétta, sem lifa óhófslífi, og til erlendra auðfé- laga, en þessir aðilar eru alls ráðandi. Allur þorri manna býr hins vegar við örbirgð, menntunarleysi og réttinda- leysi. Til þess að bæta lífskjörin er iðnvæðing nauðsynleg, og hafa öll lönd rómönsku Ameríku lagt út á þá braut, en hún hefur reynzt fjárhags- getu þeirra ofviða, svo að í kjölfarið hefur fylgt fjárhagskreppa, verð- bólga, verkföll og atvinnuleysi. Árið 1960 var mesta verkfallsár í sögu þessa heimshluta. Ríkisstjórnir þess- ara landa hafa fengið fjárhagsstuðn- ing frá Bandaríkjamönnum, sem hafa veitt lán með þeim skilyrðum, að rek- in væri ákveðin stefna í atvinnumál- um. Umbætur þær, sem gerðar hafa verið í rómönsku Ameríku hafa alltaf hrokkið skammt, verið kák eða hálf- stigin spor, vegna þess þær hafa verið gerðar innan ramma ríkjandi þjóðfé- lagshátta, án þess að hróflað væri í nokkru við hagsmunum yfirstéttanna og hins erlenda valds. Þau stórtíðindi hafa gerzt í Vestur- álfu, að þar hefur orðið bylting, sem markar tímamót. Þegar Fídel Castró og byltingarher hans héldu inn í Ha- vanna á nýársdag 1959 og hröktu Batista úr landi, bjuggust flestir við og sumir væntu þess, að hér væri á ferðinni enn ein byltingin í rómönsku Ameríku. En síðan þessi hátíðlega innreið var gerð í höfuðborgina, hef- 100

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.