Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Side 79

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Side 79
UMSAGNIR UM BÆKUR Matthías Johannessen: Jörð úr ægi Helgafell 1961. umah bækur eru torskiljanlegar, ef menn þekkja ekki jarðveginn, sem þær eru sprottnar úr. Þær eru lítt aðgengilegar án skýringa. Jörð úr œgi er ein þeirra. Höfundurinn, Matthías Johannessen, rit- stjóri Morgunblaðsins, er ungur maður, þrí- tugur að aldri. Hann var barn í mótun, þeg- ar ísland var hernumið í fyrsta sinn, 1940; óx og dafnaði í Reykjavík samtímis borg- aralegu þjóðfélagi, sem einkennist af hraða, liávaða og auðhyggju og sækir allar fyrir- myndir út fyrir landsteinana. Fólkið í Reykjaneskjördæmi hefur losnað úr tengsl- um við bændamenninguna. í dag er annar hugsunarháttur ríkjandi í hinu forna land- námi Ingólfs en annars staðar á landinu. Matthías er um flesta hluti góður fulltrúi stríðsgróðakynslóðarinnar, duglegur, fram- gjarn og áhrifagjarn. Fyrsta ljóðabók hans, Borgin hló, kom út 1958, HólmgönguljóS komu út snemma árs 1960 og JörS úr œgi nákvæmlega ári síðar. Ekki eru öll ljóð hans, sem birzt hafa, í þessum bókum, enda mun nú vandfundinn afkastameiri Ijóða- smiður hérlendis. Matthías yrkir ekki ein- göngu af listrænni þörf, heldur jafnframt af metnaðargimi. Mörg ljóð hans eru áróð- urskennd. Matthías stefnir þráðbeint að ákveðnu marki. Hann ætlar sér forystu í borgaralegri menningarsókn. Matthías stendur undir merkjum erlendr- ar ljóðstefnu. Bragfræðireglur hefur hann að engu og íslenzkrar ljóðhefðar gætir ekki nema í vísuorðum, sem hann tekur úr kvæðum skálda frá fyrri tímum. Með þessu er auðvitað ekki sagt, að höfundurinn troði spánýjar slóðir í formi. En athyglisverð er sú staðreynd, að íhaldssinnuð ungskáld eru yfirleitt formbyltingarsinnuð. Jörð úr ægi er ljóðaflokkur í sjö köflum. Efnið er reykvískur nútími, kvöld í Naust- inu, ástarleikur í hlíðum Esjunnar, róman- tísk vella. En þetta er einungis umgjörð. Hið raunverulega viðfangsefni er afstaða höfundar til framvindunnar í heiminum. Hann gerir sér far um að vera bamslegur fegurðardýrkandi, vill að lífið streymi fram í vanaskorðunum, en veit, að veraleikinn er spunninn úr rauðum þræði einn dag þegar viS erum hér á ferS saklaus og grœn ugglaus sem ormur í grasi og höjum ekki tíma til neins nema horja á ójullgert teppi guSs meS hraunsvörtu grjóti sem stingst upp í lwja gœð'ingsins — óvissan dag hleypa þeir yjir vellina troða lyng undir fótum troSa gras í jóreyk grugga fjallavötnin í augum okkar breyta óljósum grun í járnhœlaða staðreynd koma þeir óvœnt eins og sól úr hánorðri merkja okkur dauðanum meðan við bíðum, Bölsýni og ótti eru grunntónarnir, sem skírast hljóma. Höfundurinn fullyrðir tví- vegis, að rauðhesta gestir ríði í garð, en gerir svofellda grein fyrir sjálfum sér Við erum skáld dauðans — heyrum ókunnan gest ríða einan í garð á þjóðsöguhvítum hesti og slœgjast ejtir Ijóði þeirra sem halda þeir eigi annan dag í handraðanum, vita ekki: þeim er skammtað líf úr hnefa. Þetta finnst mér vel kveðið og hef ekki fundið rishærri skáldskap í þessari bók. Hvað táknar þá bókarheitið? Hvaða boðskap er höfundurinn að fiytja? Ljóðaflokkurinn mun hugsaður sem ný darraðarljóð, þar sem bókarlokin eiga að boða sigur hins rétta málstaðar. 157

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.