Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1963, Side 67

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1963, Side 67
BALDUR RAGNARSSON Esperanto sem þýðingamál Mörgum kemur það spánskt fyrir, að „tilbúið" tungumál eins og esperanto fái túlkað sannan skáldskap. Þeim öllum er það sameiginlegt, að þeir dæma að óreyndu. Aldrei hef ég heyrt nokkurn hallmæla esperanto, sem það hefur lært, né bera á það brigður, að sem bókmenntamál hefur það ýmsa merkilega eiginleika, sem náttúrumálin hafa ekki jafn ríkulega. Hér verður minnzt á fátt eitt: sagnorð má mynda viðstöðulaust með orðflokksendingu af öllum nafnorðs- og lýsingarorðsstofnum, einnig lýsingarorð af nafnorðs- og sagnorðsstofnum o. s. frv.; notkun atviksorða er handhægari og meiri en í nokkru náttúrumáli; aðskeytakerfi málsins býr yfir athyglisverðum tjáningar- möguleikum. Nákvæmni, skýrleikur og sveigjanleikur eru þeir eiginleikar, sem einkenna esperanto öðru fremur; af hinum síðastnefnda leiðir m. a., að stirðnuð orðasambönd eru nær óþekkt fyrirbæri í málinu, en þau eru einna fjandsamlegust skáldum sem kunnugt er. Ekki mun ég ræða frumsamdar esperantobókmenntir hér að sinni, heldur víkja að hæfni esperantos sem þýðingamáls. í stað þess að fjölyrða um hina fræðilegu hlið, hef ég valið þá leið að bera saman nokkrar þýðingar — þar á meðal er esperantoþýðing — á einu af hinum þekktari lj óðum eftir franska skáldið Charles Baudelaire, L’Albatros, og athuga hversu þeim tekst hverri um sig að túlka frumkvæðið. L’ALBATROS (franski jrumtextinn) Souvent, pour s’amuser les hommes d’équipage Prennent des albatros, vastes oiseaux des mers, Qui suivent, indolents compagnons de voyage, Le navire glissant sur les gouffres amers. A peine les ont-ils déposés sur les planches, Que ces rois de l’azur, maladroits et honteux, Laissent piteusement leurs grandes ailes blanches Comme des avirons trainer á cðté d’eux. TÍMARIT máls oc mennincar 257 17

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.