Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1964, Page 77

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1964, Page 77
inn, sem les Hrafnkels sögu, getur ef- azt um, að Hrafnkell elski sj álfan sig. Slikt kemur þegar fram í mannlýs- ingunni, sem vitnað var til hér að framan. Og þegar Hrafnkell ræðir við Þorbjörn, örlar á þeirri kristi- legu hugmynd, að menn eigi að elska náunga sinn: „Hefir þú verið nábúi minn langa stund og hefir mér likað vel til þín, og hvorum til annars.“ Ég hef þegar vikið að ofmetnaði Þorbjarnar, er hann ber sig saman við yfirmann sinn, en viðbrögð Hrafnkels bera einnig vitni um of- metnað: „Þá þykist þú jafnmenntur mér, og munum við ekki að því sætt- ast.“ Hér má minna á Alexanders sögu til samanburðar: „Þar er og Superbia, það er drambsemi. Hennar athöfn er sú að skelkja jafnan að öðrum, þykjast yfir öllum, vilja eigi vita sinn jafningja." í fornri islenzkri hómilíu, sem að öllum líkindum var samin eða islenzkuð á 12. öld, segir m. a.: „Fjötur er lagður á þann mann, er svo er metnaðarfullur, að hann þykist yfir öllum öðrum. ... Sá fjöt- ur er svo rammlegur, ef hann er eigi brotinn með lítillœti, að ekki má til þess ætla að stíga í himininn með hann.“ Þeir lesendur Hrafnkels sögu, sem vilja leggja táknrænan skilning i meðferðina á Hrafnkatli austur á Aðalbóli munu hiklaust telja, að með drambsemi sinni hafði Hrafnkell unn- ið til þess fjöturs, sem þar er á hann lagður. SiSjræði Hrafnkels sögu Eins og oft ber við í siðfræðilegum dæmisögum, verður fall hins dramb- sama manns þeim mun þyngra sem hann hefur hærra klifið. Hrafnkell er dæmdur á þingi, og síðar er hann tekinn höndum á Aðalbóli, pyndaður og hrakinn smánarlega af jörð sinni og goðorði. Hrafnkell hlýtur harða refsingu fyrir ofmetnað sinn og ein- ræði, en í honum hýr svo mikil vizka og skilningur á sj álfum sér og öðrum, að hann á sér uppreistar von. Hann læknast af þeirri meinsemd, sem olli mestu um fall hans. Með niðurlæg- ingu sinni hefur hann afplánað fyrir afbrot sín og verður annar og betri maður: „Maðurinn var miklu vin- sælli en áður. Hafði hann hina sömu skapsmuni um gagnsemd og risnu, en miklu var maðurinn nú vinsælli og gæfari og hægri en fyrr að öllu.“ Um þenna þátt í ferli Hrafnkels hef ég ritað nokkuð í riti mínu um söguna, og er því óþarfi að endurtaka það hér. Og þar hef ég einnig bent á, hvernig sekt og refsing leikast á í sögunni. 9 Skarpasta andstæðan við Hrafnkel er Eyvindur Bjarnason. Hann kemur heim til íslands úr langri utanför og hefur þá framazt suður í Miklagarði. En mestum ljóma á þenna glæsilega bóndason varpar þó umhyggja hans fyrir fátækum frænda sínum, sem hann hafði gert að skósveini sínum: 283
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.