Tímarit Máls og menningar - 01.12.1976, Page 56
Tímarit Máls og menningar
7 Eva kippir að sér speglinum: „Góði, hættu þessari hótfyndni!“ Hún
fleygir spegli á borðið: brothljóð.
Rödd Jakobs: „... og þú sért spegilmynd hennar... ?“
8 Eva vindur rassinum að honum: „Hana, renndu lásnum niður!“
9 Jakob rennir lásnum frá í einum rykk. Eva færir sig úr brókaðe-
kjólnum. Hann segir reykjandi: „Spegilmynd 365 spegla sem hanga
í röð í svefnherbergi, stofu, gangi, klósetti... Ný manneskja í hverj-
um spegli! “
Eva hvefsin: „O éttann!“
10 Hún stendur í lífstykkinu, ber hendur að vöngum sér og segir: „Los-
aðu lífstykkið helvítið þitt! “
11 Jakob beygir sig í hnjám. Hann þarf að beita nöglum: „Hver reyrði
þig í þetta sinn?“
Rödd Evu: „Tíkarsonurinn...“
12 Tommi liggur hrjótandi í sófanum. Rödd Jakobs: „Hann ætti að
leysa sinn Gordíons-hnút sjálfur! “
13 Jakob baksar við hnútinn. Rödd Evu er orðin roskinlegri: „Að ég láti
hann káfa á mér, neitakk!“
Jakob spyrnir hné í tortuna. Slaufan leysist. Hann segir: „Líklega
gamall skáti! “
14 Eva tekur af sér grímuna um leið og hún vindur sér við í líki Guð-
mundínu: „Oh, en sá léttir! ... Að vera aftur maður sjálfur!“
Jakob glottir: „365-faldur!“
15 Það hnussar í Guðmundínu. Hún leggur grímuna uppíloft á stólset-
una við hlið stráksgrímu Mallýar, kippir loðkápu og kjóli af stól-
bakinu og rigsar út: „Nú fer ég í bað: góði afgreiddu manninn“
SEYTJÁN
1 Jakob dregur wiskýflöskuna undan buxnastrengnum. Það heyrist lang-
ur geispi.
358