Tímarit Máls og menningar - 01.12.1976, Page 58
Tímarit Máls og menningar
Þar er ekkert hjálpræði, engin þörf að predíka, og maður gerir
dáldið gagn ... Enginn er mér viljugri að bera töskur... Heyrðu,
hvað sagðism starfa?“
12 Tommi lagar þverslaufuna: „Ég? ... Kenni tungumál...“
Jakob: „Hvaða?“
Tommi: „Ensku þýsku frönsku.“
Jakob: „Er nokkuð upp úr því að hafa?“
Tommi: „Nei.“
Jakob: „Gangm í guðfræðina einsog ég: hún svíkur engan.“ Hann
fer í burm: „Nú sæki ég glös.“
Rödd hans: „Guð er Guð!“
ÁTJÁN
1 Tommi tínir púsluspilsbita í plastpokann. Spegillinn hvolfir á hrúg-
unni. Tommi speglar sig í glerlausu pappabakinu. Hugsar: „Skelf-
ing er ég grámyglulegur! “ Opnar munn og skoðar tennur: „Augn-
tennur heilar, en jaxlarnir ... brunahraun!“
2 Tommi gleiður á stólnum; styður olnboga á hné. Hann telur bitana
í byrðingi skipsins: „Tveir, fjórir, sex, átta, tíu... Hreint ekki svo
lítið! “
Hann lætur bitana detta í pokann tvo og þrjá.
3 Jakob kemur svífandi með tvö wiskýglös. Segir: „Bitte mein Herr!“
Tommi hristir höfuð.
Jakob: „Það hreystir þig ...“
Tommi bograr undir borðið að ná í bita sem glutruðust niður. Hann
segir: „Maginn.“
Jakob: „Nú, svo!" Hann svelgir úr glasinu: „Skeifugörnin?"
Tommi rís upp úfinn: „Já, skeifugörnin."
Jakob: „tluh, skeifugörnin!“
Rödd Guðmundínu hvell: „Jæja, hefurðu afgreitt manninn?“
4 Hún stendur í gættinni. Krep-sloppurinn rósótti flakir; hárrúllur.
Rödd Jakobs: „Um hvað sömduð þið?“
X
360