Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Page 32

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Page 32
Tímarit Máls og menningar alþ...., í alþýðulýðveldinu var ég næstum búinn að segja. Sko, sam- bandslýðveldinu átti ég við! Hér er ekki skortur á yrkisefnum fyrir póli- tískan vísnasmið. Mér þykir leitt að atburðir hér skuli hafa komið mér til hjálpar með svo dapurlegum hætti. Því á þessu ári síðan ég kom hingað hefur pólitískt ástand hér snúist hrottalega í átt til fasisma. Því miður er enginn skortur á efni fyrir ballöður, vísur eða kersknissöngva. T. d. varð ég fyrir heldur ömurlegri reynslu nýverið, sem ætti eiginlega heima í kvæði. A dögunum, þegar lík Schleyers fannst í Miihlhausen í far- angursrými bíls af gerðinni „Audi 100“, sá ég á bensínstöð eintak af „Bild- Zeitung“ með mynd af þessum bíl á forsíðu. Eg sagði við afgreiðslumann- inn: Það hlýtur að vera hryllilegt fyrir þá sem framleiða þessa „Audi“- bíla að láta bendla bílana sína við þetta ljóta morð. Þá sagði hann: Því þá það? Þetta er auglýsing. Þeir eru áreiðanlega ánægðir að hann skuli einmitt hafa legið í „Audi 100“. Það er besta sönnunin fyrir því að „Audi 100“ hefur gríðarlegt farangursrými. Eftirspurnin margfaldast áreiðanlega. — Þá varð mér öllum lokið. Markaðshugsunarhátturinn hér er svo kald- rifjaður gagnvart mannlegum þjáningum að hann sýnir ekki minna tilfinningaleysi en eignað er Buback-eftirmælum Mescalero-hópsins.1 Sjálfur varð ég fyrir svolítið furðulegri reynslu í sambandi við Schleyer. Þegar ég kom hingað vestur og kom fram í Stuttgart, þá hitti ég á undan fulltrúa frá Sambandi málmiðnaðarmanna. Þá byrjaði ég alltaf á að syngja ljóðið „So oder so — Die Erde wird rot“, og þar stendur „Að horfa á fingur borgaranna nægir ekki, við verðum að lemja á framloppu borgarasvínsins 1 í nafnlausu dreifibréfi, sem sent var út af stjórnleysingjahopi við háskólann í Göttingen er nefndi sig Mescalero, var fyrstu viðbrögðum bréfritara við morði ríkissaksóknarans Siegfried Buback lýst sem ósjálfráðri, dulinni gleði. Þessi dulda gleði var næstum þegar í stað bönnuð af máttarvöldum. Menntamálaráðherra Neðra-Saxlands, Eduard Pestel, bauð út á annað hundrað manna lögregluliði að leita uppi dreifiritið í vistarverum stúdenta. Innan skamms hafði orðatiltækið „klammheimliche Freude“ borist út um allt sambandsríkið, það var sú tilfinn- ing sem sögð var altaka þá sem hliðhollir væru hermdarverkamönnum. Enginn lét þess getið að Mescalero heldur áfram og fordæmir ofbeldisverk eins og morð Bubacks sem pólitíska baráttuaðferð, og sú er meginniðurstaða dreifi- ritsins. Þegar 48 háskólaprófessorar hvaðanæva af Vestur-Þýskalandi stóðu fyrir endurprentun dreifibréfsins með skírskotun til tjáningarfrelsis náðu ofsóknirnar hámarki, að þessu sinni gegn þeim, og Springer-blöðin voru í broddi fylkingar. Margir prófessoranna neyddust til, að viðlögðum stöðumissi, að undirrita holl- usmyfirlýsingu og skuldbinda sig til að taka ekki afstöðu „gegn ríkinu og stjórn- arskránni". — Þýð. 250
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.