Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Side 96

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Side 96
Steinar Sigurjónsson Ég reyni hvað ég get Af hverju sagði ég nei þegar félagar æsku minnar sögðu já og gengu burt að hneigja sig og tala? Skauta, svell og rjóðar kinnar Evu bar mér fyrir augu um árin löng, en ég lifði ekkert, heyrði ekkert nema velktan frakka minn blakta um gífur- legar nætur, og berjaxla kvikindi heyrði ég gráta, og ég þagði í fýlu hjá skúrum og hreysum. Eg hef legið um daga í þögn. Kinnar mínar eru ekki jafn rjóðar sem fyrr og héðan af mundi ekkert breytast þótt ég héldi áfram að anda. Ég hef þreyst, en brauð mitt ét ég þurrt. I gær gaf mér maður einn salad, en það varð að orði í lífi mínu, og orðið kom bleikt yfir sjávarblátt drenglyndi mitt; en þegar ég neyti smérs — það snýr mér í hríngi, og ég fer að hugsa um Evu; en oft hef ég liðið pínur af þrá til Freyju landsins, ausið fé í vín og gengið túnglsjúkar göngur með flöskur. Ég þreytist af engu og kýs ekkert en vil eitthvað þótt aldrei gerist neitt. Ég held mig hafi hrakið lángt frá því fylgsni þar sem ég löngum hló mínu lífi. Ég held ég hefði átt að hlæja meir en ég hló í æsku og segja já heldur en nei þegar félagar mínir sögðu já, í stað þess að slíta sundur ketti og spillast í skúrum. Ég veit ekki hvers vegna ég fór minn veg. Og enn eru nei mín ónýt. Ef ég legði þau á vegasaltið hennar Evu litlu mundu þau sitja kyrr á sínum enda og stara á hana. Ég held þau mundu gleyma að þau væru nei en horfa á hlámr hennar og verða já. I gær mætti ég frænda mínum á torginu og hann ruddi hósta sínum og hlátrum yfir mig, en síðan hefur hjálparleysið herjað mig enn ákafar. Þótt ég hafist ekkert að er ég hræddur. Yfir höfði mér eru baugar og þeir fylgja mér eftir og þýngja á mér, en síst lángaði mig að gánga á vatni þótt ég gæti. Nema frændi var í frakka og sagði, með hendur í vösum, hve margar konur hann hefði lagt að vori. Hann hóstaði sögum sínum og spýtti á torgið og það drundi í miðjum bænum af fjálgi hans. Ég mátti 314
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.