Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Page 116

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Page 116
Tímarit Máls og menningar herða höfundar með nokkrum saman- burðardæmum (bls. 117). Líku máli þykir þeim gegna með námseinkunnir drengja og stúlkna; ná- kvæm greining leiðir þar verulegan mun í ljós. I barnaskóla „... ná stúlkur úr öllum stéttum töluvert betri árangri en drengir. T. d. ná 42.3% drengja upp í tvö efstu bil einkunnastigans (8—10), en 56.6% stúlkna. Af drengjum hljóta 24.3% einkunn lægri en 7, en aðeins 15.3% stúlkna, ef þrjú lægstu einkunna- bilin eru dregin saman. Þannig ásann- ast kynbundinn munur á báðum vængj- um einkunnadreifingarinnar' (bls. 118). Höfunda furðar nokkuð á þessari síðar- nefndu niðurstöðu; þeir telja hana stang- ast á við áður fundnar greindarvísitölur kynjanna, sem reyndust yfirleitt hærri hjá drengjum. Þess ber þó að gæta, að námsárangur ræðst ekki af mælanlegri greind einni saman. Samkvæmt töflum 37 og 38, sem sýna greindarþroska drengja og stúlkna i báðum meginþátt- um Wechslerprófsins, virðist greindar- munur kynjanna ekki mikill og jafnast að mestu út í heild. Greindarmunur er aftur á móti mikill innan hópsins af hvoru kyni um sig og af þeim sökum verða tilfærslur á einkunnastiganum, þegar námsefnið þyngist. Tæplega 40% hvors kyns um sig ná einkunn 8—8.9; einkunn 9—10 ná 17.2% stúlkna en aðeins 6.5% drengja. Þessar háu tölur kunna að einhverju leyti að stafa af því, að námskröfur barnaskólans eru vægar og stúlkur fullnægja þeim með ástund- un og nostursemi fremur en drengir. Höfundar leitast þó við að skýra fyrr- greint misræmi út frá öðrum sjónar- miðum, m. a. kenningunni um linku- nemendur (underachievers) og hörku- nemendur (overachievers). Eflaust má finna slík börn i rannsóknarhópi þeirra, en ekki skal orðlengt um þau hér.1 A unglingaprófi kemur einkunna- munur á kynjunum ekki miklu skýrar fram. Börn af báðum kynjum flytjast niður eftir einkunnastiganum, drengir nokkru meir en stúlkur. A bilinu 6.0— 8.9 er hundraðshluti stúlkna ofurlítið hærri í heild, en upp í efsta stig (9— 10) ná miklu færri en á barnaprófi, 3% drengja og 2.4% stúlkna. Dreifing barnanna úr hverjum stéttarhópi á ein- kunnastigann verður ekki rakin hér, þó að fróðlegt gæti verið að bera saman ýmsa töluliði. Höfundar setja fram nokkrar tilgátur um ástæður til ofan- greindra breytinga, en um þær verð ég að vísa til bókar þeirra. Áður en ég vík að tveimur síðustu köflum aðaltextans, sem eru að nokkru sér um efni, vil ég drepa stuttlega á form og frágang. Bókin er ljósprentuð í stóru broti, 172 blaðsíður. I venjulegu bókarbroti, með sama letri og rausn i uppsetningu, losaði hún ríflega 400 blaðsíður. Hér er því ekki um smáverk að ræða. Vel má greina að tveir höf- undar með ólíkan stíl hafa samið text- ann. Töflurnar eru eflaust unnar í tölv- um. Bókin er mónógrafía í fremur þröngum skilningi; nöfn annarra rann- sóknarmanna eru að vísu víða nefnd innan sviga, en kenningar þeirra varla nokkru sinni bornar saman við eigin niðurstöður. Þessi háttur veldur því, að textinn ber skýrslugerðarkeim. Pappír er góður og letrið skýrt. Eg hefi ekki leitað að prentvillum, en samt rekizt á fáeinar. Tvær þeirra hafa höfundar 1 Sjá Matthías Jónasson: Frumleg sköp- unargáfa, bls. 298—307. 334
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.