Tímarit Máls og menningar - 01.10.1979, Qupperneq 18
Tímarit Máls og menningar
Hans Lynge (f. 1906) og Kristen Poulsen (f. 1910, d. 1951). Því miður
nýttust grænlenskri ljóðlist þessi skáld hvergi nærri eins og efni stóðu til,
því Pavia og Kristen dóu báðir úr berklum langt um aldur fram, og Hans
Lynge hefur lagt meiri smnd á aðrar greinir en ljóðagerð, einkum mynd-
list. En Frederik Nielsen hefur ort alla ævi, gaf fyrstur grænlenskra skálda
út ljóðabók 1943 (Himinn, jörð, haf) og er óumdeildur höfðingi núlifandi
ljóðskálda grænlenskra.
Menn hinnar nýju kynslóðar lögðu meiri „áherslu á hjartað“ en áður
tíðkaðist, voru fagurkerar töluverðir og sumir þjóðlega rómantískir líkt og
Fjölnismenn. Þeir féllu ekki í stafi yfir danskri menningu, þótt góð væri
til síns brúks, og töldu margt í fornri þjóðmenningu grænlendinga sjálfra
engu ómerkara né verr við hæfi þjóðar á hjara norður, nema síður væri.
Þegar danir innlimuðu Grænland í Danmörk með stjórnlagaboði 5. júní
1953 var punkmr settur aftan við ljóta sögu nýlendukúgunar á forna vísu,
sem gekk af mörgum góðum manni dauðum, og upphófst öld ísmeygi-
legrar nýlenduáþjánar með nútímabrag, sem menningu þjóðar stafar tor-
tímingarhætta af, hvernig sem holdinu vegnar. Þau átök sem orðið hafa
og farið vaxandi milli herraþjóðarinnar og heimamanna speglast skýrt í
Ijóðum yngsm skáldanna. Líkt og forfeður þeirra rism andstæðingnum níð
og þmmuðu yfir honum syngjandi við trumbuslátt hafa sumir ungu ljóða-
mannanna tekið nútímahljóðfæri í sína þjónusm, samið popplög og fellt
að þeim mótmælakveðskap. Þekktust grænlenskra hljómsveita er Sume,
og fremsti Ijóðasmiður hennar Malik H0egb, sem leikur með henni líka.
Arqaluk Lynge er sennilega kunnasmr ungra róttækra Ijóðskálda á Græn-
landi. Flann er þrímgur að aldri, fæddur í Egedesminni, þar sem faðir hans
er símritari og veiðimaður. Ahugi á stjórnmálum er ríkur í ættinni: faðir
hans var um skeið landsráðsmaður og afi hans, Frederik Lynge (1S89-
1957), var þjóðkunnur stjórnmálamaður og skáld, landsráðsmaður um
langa hríð og annar af tveim fyrsm fulltrúum grænlendinga á danska þjóð-
þinginu eftir innlimun Grænlands í Danmörk 1953. Arqaluk lauk stúdents-
prófi í Birkerpd rétt utan við Kaupmannahöfn 1969- A menntaskólaár-
unum birti hann fáein ljóð á dönsku í Politiken. Arið 1969-70 var hann
barnakennari í heimabyggð sinni, orti þá töluvert af ljóðum og birti í
grænlenskum blöðum. Hann átti sæti í ritstjórn bæjarblaðsins í Egedes-
minni og skrifaði þar skarpar ádeilugreinar um nýlendupólitík dana á
Grænlandi. Sumarið 1970 tók hann þátt í ráðstefnu um framtíð Græn-
264