Tímarit Máls og menningar - 01.10.1979, Qupperneq 126
Tímarit Aíáls og menningar
harSar kröfur um orðaval. Textínn ætti
ekki að skilja eftir neinar efasemdir um
það að engin vinna fer fram án þess að
höfuðið eigi hlut að máli.
Undir lok þessa kafla eru bæði firr-
ing og hlutgerving komnar til skjal-
anna, þótt hvorug sé nefnd á nafn í
textanum. Þessi umfjöllun er gagnleg
þótt stutt sé.
Eg mun ekki gera ítarlegar athuga-
semdir við kaflann um ríkið. Einu þýð-
ingaratriði vil ég þó andmæla. A bls.
169 er sagt að persónuleg samskipti
falli undir hugtakið fjölmiðlun. Þetta
er ekki hægt að fallast á og reyndar er
orðanotkun ekki í samræmi við frum-
textann. Þar er að finna orðið „kom-
munikatiorí‘ sem hér ber fortakalaust að
þýða með boðskipti. Og þar með væri
okkur blessunarlega forðað frá nýyrð-
inu „fjöldafjölmiðlun“.
í kaflanum um ríkið og valdið er
m. a. vikið að stéttaflokkun í hefðbundn-
um marxískum anda. (bls. 186). Þar
er rætt um tvær stórar stéttir: þá „sem
eiga framleiðslutækin" og hina „sem
ekkert eiga nema sitt vinnuafl". Þessi
óvægna framsetning er ekki fallin sem
skyldi til þess að hjálpa ungum lesanda
að skilja og greina félagslegt umhverfi
sitt. Að öðru leyti er umfjöllunin yfir-
veguð í þessum vandasama kafla.
Hér læt ég staðar numið við athuga-
semdir, þótt ekki séu tæmd öll um-
hugsunarefni sem kvikna við lestur þess-
arar bókar.
Ég gat þess fyrr að Auður Styrkárs-
dóttir hefur unnið þýðingarstarf sitt
með sóma. Ég vil ítreka það. Hún hef-
ur skilað í hendur framhaldsskólafólks
nýstárlegri og gagnlegri bók.
Joachim Israel er maður umdeildur
í heimalöndum sínum, og hefur ekki
setið á friðarstóli svo lengi sem ég man.
Hann fer ekki troðnar slóðir við að
kynna félagsfræði út fyrir sérfræðinga-
hóp, og stingur óneitanlega töluvert í
stúf við starfsbræður sína, sem þó eru
mislit hjörð. Þegar ég sé bókina Sam-
félagið meðal annarra inngangsrita um
félagsfræði, flýgur mér í hug ævintýri
H. C. Andersens um ljóta andarungann.
Rit sem vitnað er til:
BERGER, P. L. (1968): Inngangur að
félagsfræði. Mál og menning,
Reykjavík.
BERGER. P. L. (1969): The Sacred
Canopy. Anchor Books, Double-
day & Company, Garden City.
BERGER, P. L. og T. LUCKMANN
(1967): The Social Construction of
Reality. Anchor Books, Double-
day & Company, Garden City.
ISRAEL, J. (1972): Om konsten att
lyfta sig sjálv i háret och behálla
barnet i badvattnet. Rabén & Sjö-
gren, Stokkhólmi.
ISRAEL, J. (1973): Sociologisk grund-
bog I. Gyldendal, Kaupmannahöfn.
MARX, K. og ENGELS, F. (1968):
The German Ideology. Progress
Publishers, Moskvu.
MYRDAL, G. (1968): Objectivity in
Social Research. Gerald Duckworth
& Co., London.
YEARBOOK OF NORDIC STATIS-
TICS 1977 (1978): Norðurlanda-
ráð, Stokkhólmi.
ÞORBJÖRN BRODDASON og
KRISTINN KARLSSON (1978):
Könnun á jafnréttismálum í
Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi
og Neskaupstað. Fjölritað við Há-
skóla Islands.
Þorbjörn Broddason.
372