Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1979, Side 129

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1979, Side 129
Umsagnir um bcekur framleiðslunnar og dreifing hennar grundvallast á meðvituðum ákvörðunum af hálfu áætlanastofnana ríkisins." Alveg eins og í dæmigerðum auðvaldsríkjum! Á öðrum stað rekumst við á þessa stórmerku athugasemd: „ „Offramleiðsla" í formi sóunarframleiðslu (waste-production) ...“ Frumlegasta kenningin í bókinni „Marx og Keynes" er annars sú, að í Sovétríkj- unum sé verið að framkvæma hugmyndir J. M. Keynes, en ekki Marx. „Þótt ríkis- kapítalísku eða ríkissósíalísku byltingarnar hafi verið framkvæmdar í nafni Marx, þá væri þeim betur lýst sem „keynesíönskum byltingum" ... Það er hægt að líta á ríkiskapítalíska kerfið ... sem rökréttasta og háþróaðasta form keynesíanisma".! Ef allir þeir keynesíanistar sem hafa stjórnað efnahagsstefnu ríkisvaldsins í auð- valdsríkjunum undanfarna áratugi bara hugsuðu rökrétt, þá væru þeir fylgjandi „keynesíönskum byltingum" yfir til ríkiskapítalisma! Carter, Barre, Callaghan, Samuelson.Galbraith, Geir Hallgrímsson og Jóhannes Nordal! Er nokkur furða þótt sagnfræðilegar athugasemdir, sem byggja á hagfræðilegri „greiningu" af þessu tagi, séu harla sérkennilegar? Alattick og Lenín. Þegar maður les grein Matticks er erfitt að verjast þeirri hugsun að hann hafi aldrei lesið rit Leníns. I greininni í TMM segir hann t. d.: „Hann (Lenín) var jafnframt reiðubúinn að hrifsa völdin án þess að styðjast við meirihluta.“ Þessu til stuðnings vitnar hann í bréf sem Lenín skrifaði í september 1917, þar sem stendur: „Það væri barnalegt að bíða eftir formlegum meirihluta bolsévika. Eftir því getur engin bylting beðið.“ Lenín setur reyndar gæsalappir utan um orðið „formlegum“. Að öðru leyti er tilvitnunin rétt. Þegar bréfið er lesið í heild kemur aftur á móti í ljós að sá „formlegi“ meirihluti, sem Lenín er að fjalla um, er meirihluti á s. k. lýð- ræðisráðstefnu, sem Kerensky boðaði til í september 1917. Þetta sama bréf Leníns hefst á orðunum: „Nú þegar Bolsévikar hafa náð meirihluta innan Ráðanna í tveim stærstu borgunum, þá verða þeir að taka ríkisvaldið í sínar hendur. Þeir geta þetta vegna þess að hinn virki meirihluti byltingaraflanna í þessum stóru borgum er nægi- lega stór til þess að fólkið mun fylgja honum.... Meirihluti fólksins er okkar megin.“ (Undirstr. Leníns.) Það má deiia um það hvort þessi niðurstaða Leníns hafi verið rétt. Það er aftur á móti ekkert vafamál að þetta var sú viðmiðun sem Lenín hafði þegar hann lagði til að uppreisnin yrði framkvæmd. Að taka úr bréfi Leníns tilvitnun sem fjallar um ákveðinn meirihluta í ákveðinni stofnun, en fela þá hluta bréfsins sem and- mæla fullyrðingu Matticks hlýtur að teljast gróf fölsun. Það bendir margt til þess að Mattick hafi aldrei lesið þetta bréf Leníns í heild. í grein sinni eignar hann t. d. Lenín þá skoðun að í Rússlandi hafi einungis verið hægt að „velja á milli kapítalísks alræðis í dulargervi borgaralegs lýðræðis og alræðis verkalýðsstéttarinar undir leiðsögn bolsévikaflokksins.“ I áðurnefndu bréfi andmælir Lenín þessari skoðun, sem Mattick reyndar aðhyllist sjálfur. Við gætum tíundað hér fleiri dæmi í grein Matticks um beinar falsanir og rang- færslur á hugmyndum Leníns. Vegna plássleysis verður það ekki gert hér. 375
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.