Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Page 125

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Page 125
Brecht og Berliner Ensemhle við það sem verið var að sýna, en birtu honum það þó í nýju og óvæntu ljósi. Leikarinn varð að vera reiðubúinn til að fórna sálfræðilegum trúverðugleika til að sýna áhorfendum þær hliðar á mannlegri hegðan sem ef til vill lágu ekki í augum uppi i daglegum samskiptum. Þá leiktækni sem Brecht vildi nota í þessu skyni kvaðst hann m. a. hafa fengið að láni úr ýmsum ævafornum asískum leikhúsformum, en gefið nýjan tilgang. Höfuðmarkmið hans með þessum firringarbrögðum var að koma áhorfendum í skilning um að framferði manna væri að miklu leyti félagslegum skilyrðum háð og að með því að breyta samfélagsháttunum myndi margt sem áður hefði virst óumbreytanlegt í sam- skiptum manna taka stakkaskiptum. Leikarinn mátti því ekki beina athygli sinni og áhorfandans inn yfir einhver lítt könnuð sálardjúp, heldur varð hann að afhjúpa þá þjóðfélagsafstöðu sem athafnir persónunnar endurspegluðu eða leyndu. Um leið legði hann fyrir áhorfendur skoðanir sínar og mat á þessari persónu og hvetti þá þannig sjálfa til að taka afstöðu til hennar. Aðalatriðið var að áhorfandinn fengi nýja sýn á hluti sem hann hefði ekki áður fundið neitt athugavert við, og við það varð túlkun leikarans að aðstoða hann. í hinu epíska leikhúsi mátti ekkert virðast sjálfsagt og óumbreytanlegt, heldur varð allt að birtast sem undirorpið breytingu og þróun. Skrif Brechts um leikhús, leikritun og leiklist eru mikil að vöxtum og fullyrðingar hans eru oft óljósar og sé vel að gáð má jafnvel finna í þeim mótsagnir. Þær eru skipulegast settar fram í Litilli stefnuskrá fyrir leiklistina, Kleines Organon fúr das Theater, sem Brecht samdi í Sviss árið 1948, skömmu áður en hann hélt til Austur-Þýskalands. Þær hafa haft mjög mikil áhrif á allt vestrænt leikhús og margir leikhúslistamenn hafa reynt að tileinka sér aðferðir og stíl hins epíska leikhúss. Þetta hefur gengið misjafnlega vel; ekki síst af því að leikarar hafa átt erfitt með að ná valdi á hinni epísku leikaðferð. Brecht gramdist oft mjög að sjá hvernig leikarar lifðu sig inn i persónur hans i stað þess að afhjúpa þær og lögðu þannig áherslurnar á allt annan hátt en hann hafði sjálfur ætlast til. Til þess að koma í veg fyrir slíka misnotkun á verkunum lét hann gera svonefndar „módel-bækur“ um margar seinni uppfærslur sínar, þar sem þeim er lýst í smáatriðum og félagsleg merking þeirra útlögð. Það er vafasamt að þessar bækur hafi leitt til annars en fátæklegrar stælingar og yfirborðslegrar kreddu- festu. Mönnum hefur nefnilega of oft viljað gleymast að kenning Brechts miðar öll að því að hafa tiltekin áhrif á þá sem horfa á sýninguna; fá þá til að endurskoða viðhorf sín, gagnrýna ríkjandi þjóðfélagshætti, finna raunhæfar leiðir til að breyta sjálfum sér og veröldinni. En það er erfitt að sanna að stílbrögð hins epíska leikhúss nægi til þess e'm að knýja áhorfandann til um- 247
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.