Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1989, Side 15

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1989, Side 15
Bergljót S. Kristjánsdóttir, Sverrir Tómasson og Örnólfur Thorsson Steingervíngsháttur Sjaldan er fjallað um lestrarútgáfur íslenskra fornrita í ritdómum. P>ó hefur slík útgáfa lengi staðið með miklum blóma og margir ágætir fræðimenn komið þar við sögu, skýrt torráðna staði og safnað saman þeim fróðleik og vísindum sem kunn voru um söguefnið hverju sinni. I þessu sambandi má nefna skólaút- gáfur Olafs Halldórssonar á Færeyinga sögu og Óskars Halldórssonar á Egils sögu og Hrafnkels sögu. Lítið hefur einnig verið fjallað um ritsöfn fornsagna handa alþýðu. Utgáfa Guðna Jónssonar og Bjarna Vilhjálmssonar hefur aldrei verið metin að verðleikum og henni talið það til gildis sem henni ber: að vera stærsta safn sígildra forníslenskra bókmennta sem prentað hefur verið. A út- gáfu Gríms M. Helgasonar og Vésteins Ólasonar hefur og naumast verið minnst. Fáeinar skólaútgáfur hafa að vísu verið nefndar í tímaritum kennara og skólamanna, en þau komast sjaldnast út fyrir kennarastofuna og gagnast því lítt almenningi. Tilefni þessa pistils er þrír ritdómar sem nýlega hafa birst um útgáfur okkar á íslendinga sögum og þáttum I-III (1987) og Sturlunga sögu (1988), sem og tvö skýringarkver við sérprent úr heildarútgáfunni, ætluð skólafólki (Sígildar sögur 1-2, Skýringar, 1986 og 1987); Einar Gunnar Pétursson (EGP) skrifar um ís- lendinga sögur og skýringarkverin í Skírni 1988 og Guðrún Nordal (GN) um Sturlungu í sama tímarit, en Einar Már Jónsson (EMJ) í Tímarit Máls og menn- ingar (1989); við viljum einkum gera athugasemdir við dóm EMJ. Að útgáfun- um sem fyrr voru nefndar standa auk okkar þriggja: Bragi Halldórsson, Gísli Sigurðsson, Guðrún Ása Grímsdóttir, Guðrún Ingólfsdóttir og Jón Torfason. Það er ekki síður nauðsynlegt að ræða almenningsútgáfur en stafréttar og vísindalegar útgáfur fornra bókmennta. En það má ekki rugla þessu tvennu saman: lestrarútgáfur gegna öðru hlutverki en textafræðilegar útgáfur, þær eiga annað erindi við lesendur og eru ætlaðar stærri hópi. Stafréttur texti fornra rita gagnast einkum málvísindamönnum, handritafræðingum og þeim sem velja texta til prentunar í lestrarútgáfur: almenningsútgáfur eru eins og nafnið gefur til kynna ætlaðar almennum lesendum en nýtast t.d. einnig fræðimönnum sem ekki eru á höttunum eftir mismunandi orðalagi handrita. Og sá texti sem prentaður er í lestrarútgáfum þarf auðvitað að vera traustur. Umræðan um þær má hins vegar ekki snúast einvörðungu um frágangsatriði eins og röð texta í 141
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.