Tímarit Máls og menningar - 01.04.1989, Síða 52
Tímarit Máls og menningar
henni bjó. Menn fóru þá að gefa gaum að sérkennum og sérstöðu lands síns
og þjóðar og
„Þá var auk annars farið að taka eptir því, hvílíkan fjársjóð ættjarðarástin á,
þar sem eru umliðnu tímarnir. Bóknámsmennirnir tóku sig nú til, að safna
sem vandlegast öllum menjum hinna fornu tímanna, og varðveita þær eins og
þjóðdírindi. “(11-12)
Ahuganum á söfnun þjóðsagna, þjóðkvæða og ævintýra er síðan lýst og
umræðan aftur tengd við Eggert glóa.
Það er ljóst að Jónas, sem hér stýrir penna, telur rímurnar ekki til bók-
menntaarfs eða jákvæðrar alþýðumenningar heldur skoðar hann þær sem
beinar nútíma- og afþreyingarbókmenntir. Rímurnar voru fluttar munn-
lega fyrir áheyrendur og þess vegná urðu þær að byggja upp hraða at-
burðarás og hafa skemmtigildi. Oll gagnrýni Jónasar gerir ráð fyrir yfirveg-
uðum lestri textans og málfarsgagnrýni hans gengur út frá því að málið sé
hlutgert, þ.e. að merking orðanna felist að hluta í sjálfri orðmyndinni og
formi hennar.14
Tímaritin voru nýr bókmenntavettvangur á Islandi og með þeim opnuð-
ust nýir möguleikar. Ritdómur Jónasar sýnir að tími var kominn til að
kveðja munnlegan flutning og félagslega neyslu bókmennta og byrja að lesa
ljóð í hljóði og njóta þeirra í einrúmi.
Sagt hefur verið að rómantíkin hafi verið tími hinna miklu „föður-
morða“ í bókmenntunum, aldrei fyrr (en oft síðar) hafi kynslóð ungra
manna verið svo í mun að bera af sér alla hefð og rætur í næsta tímabili á
undan. „Morðárás" Jónasar Hallgrímssonar var ekki beint gegn Sigurði
Breiðfjörð (sem var níu árum eldri) persónulega. Sá „faðir“ sem Jónas vill
drepa er rímnaskáldskapurinn. Það eru nýjar hugmyndir um það hvað
skuli tekið gilt sem veruleiki sem Jónas setur fram í ritdómnum og þörf er á
nýrri fagurfræði til að tjá þessa lífssýn.
Þjóðernisstefnan
Ernest Gellner hefur sett fram kenningar um upptök fyrirbærisins þjóðern-
isstefnu. Þjóðernisstefna er að hans mati „fölsk hugmyndafræði". Með iðn-
byltingu og valdatöku borgarastéttar myndaðist þörf fyrir menntað vinnu-
afl sem ekki var átthagabundið heldur hreyfanlegt. Það varð að stofna
skóla, miðstýra, samræma og það var ekki hægt nema þjóðar- og ríkismörk
féllu saman.15 Þjóðernisstefnan verður til af því að efnahagsþróunin skapar
þörf fyrir hana. í ritgerðinni „Að ferðast burt til að koma heim“16 rekur
Turið Sigurðardóttir Joensen kenningar Gellners sem að hluta til skýra til-
urð færeyskrar þjóðernisstefnu. Um leið hrekkur efnahagslegt líkan Gelln-
178
i