Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1989, Qupperneq 66

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1989, Qupperneq 66
Tímarit Máls og menningar mótanna, þótt hann gerði upp við sjálfhverfan hugarheim þeirra í lok bókar sinnar. Ekki fæ ég séð að Astráður vegi að þessari túlkun minni svo nokkru nemi, hvað sem ýmsum áhugaverðum ábendingum líður. Gagnrýni Ast- ráðs beinist fremur gegn forsendum mínum og hugtökum, svo sem notkun minni á orðunum menningarbylting, módernismi og þó einkum og sér í lagi aldamótamódernismi („illa undirbyggt og iðulega vandræðalegt í með- förum höfundar“, ÁE bls. 279). Mér fannst því rétt að láta grein hans verða mér tilefni til að ræða þessi hugtök svolítið nánar og hugleiða um leið hlut- verk bókmenntasögunnar yfirleitt. Bylting menningar Víkjum fyrst að hugtakinu menningarbylting. Ástráður finnur að notkun minni á því orði og telur að vilji menn „endilega" nota það orð, sé nær að staðsetja byltinguna um miðja öld, og nefnir sérstaklega komu hersins og stríðsgróðann (ÁE bls. 314). Orðið menning tekur sem kunnugt er til fleiri þátta en fagurbókmennta og sinfóníutónleika í útvarpinu; það varðar líka lífshætti okkar og kjör, daglegt líf, verk-menningu og menntun. Enginn vafi leikur á því að allt þetta breyttist mjög með seinna stríði, og hefur raunar verið að breytast ört alla öldina. En rök mín fyrir því að kalla fyrsta fjórðung 20. aldar tíma menningarbyltingar eru að þá hefst af krafti hreyf- ing sem enn varir, þá er rofin á skömmum tíma aldagömul kyrrstaða hér á landi. Sú bylting skekur sjálfan grunn samfélagsgerðarinnar og hefur í för með sér gerbreytingu alls menningarlífs. Á 19. öld erum við langt á eftir vesturevrópskum ríkjum hvað þéttbýlismyndun og iðnað varðar, en íbúa- fjöldi Reykjavíkur hartnær fimmfaldast á fyrsta fjórðungi 20. aldar. Á miðjum þriðja áratugnum býr tæpur helmingur Islendinga í bæjum með fleiri en 300 íbúa, 1890 var þetta ekki nema einn tíundi þjóðarinnar. Sjálf þéttbýlismyndunin er mesta „menningarbylting“ nýaldar (boðskiptabylt- ing síðustu áratuga er rétt að fara að ógna henni), og hún varð þetta seint hér á landi. Eins var með atvinnulífið: Heimir Þorleifsson sagnfræðingur hefur með nokkrum rétti fullyrt að togaraútgerðin hafi gegnt hlutverki iðn- byltingar hér á landi, og hún hefst ekki af krafti fyrr en 1907, og skilar af sér 40% af fiskafla landsmanna árið 1922 (sbr. LL bls. 26-32). Árið 1933 fengu landsmenn 85% útflutningstekna sinna fyrir sjávarafurðir, en þá höfðu Islendingar verið landbúnaðarþjóð í þúsund ár.2 Sé litið á landið allt ráða hagsmunir smáframleiðenda, bænda og fiski- manna enn mestu í hagkerfi okkar á þriðja áratugnum, en hreyfi- og um- breytingarafl efnahagslífsins er auðmagnið í Reykjavík. Um leið taka stéttastjórnmál við af sjálfstæðisbaráttunni, eftir að fullveldi fæst. Með um- skiptunum - þéttbýlismyndun, auðmagnsupphleðslu, stéttastjórnmálum - 192
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.