Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1989, Side 112

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1989, Side 112
Ingunn Þóra Magnúsdóttir Bréfin hennar Fríðu Æ Málfríður mín, sendu mér nú andagift! Eitthvað á þessa leið hugsaði ég, nagandi blýantinn, úti í Stórhöfðavita sl. sumar, þar sem ég var aðstoðar- vitavörður. Mér hafði verið falið að gera stutta samantekt um þessa ágætis frænku mína og vinkonu, en átti eitthvað erfitt með að koma mér að verki. - Og þá duttu mér bréfin hennar í hug. Vissulega geng ég í smiðju hennar sjálfrar, því það er ekkert hægt að segja um Málfríði þannig að hún segi það ekki helmingi betur sjálf. Þessi skrif hef ég því kosið að nefna Bréfin bennar Frídu. Hér verður stuðst við og birt úr bréfum til þriggja kynslóða, það er til móður minnar, en henni skrifaði hún einnig á sínum tíma í Þjóðviljann undir titlinum Bréf til Önnu, þá eru nokkur bréf til mín og loks bréf til dóttur minnar, en það bréf mun vera með hennar alsíðustu sendibréfum. Þótt ég þekkti Málfríði vel og upplifði margt skemmtilegt með henni, þá er það einhvern veginn svo, að þegar rifja á upp liðna tíð, þá er allt í brot- um og brotabrotum og helst kemur upp í hugann eitthvað sem hægt er að hlæja að, jafnvel eitthvað fáránlegt. Ég minnist þess hverju Málfríður svar- aði þegar ég innti hana eftir því hvað henni væri minnisstæðast úr lang- þráðri Rómarferð, sem hún fór í nokkrum árum áður en hún dó. „Það eru þrír svartir kettir," svaraði hún að bragði, „þrír svartir kettir í Kolosseum." - Og þó fór hún á vit þeirra manna sem hún elskaði umfram aðra menn, svo notuð séu orð hennar sjálfrar, - þeirra Leonardos og Rafaels. En svona er þetta, Málfríður, fyrir utan hvað hún var gulltrygg og góð manneskja, mun alltaf verða mér minnisstæðust fyrir sín skemmtilegu tilsvör og skrítnu setningar, sem hafa komið mér til að skella upp úr á ólíklegustu stöðum, í strætó og á torgum svo eitthvað sé nefnt. Ein af mínum eftirlætis endurminningum um Fríðu er þegar hún í fjölskylduboði, eða „bjóði“ eins og hún kallaði slíkar samkomur oft, hafði setið steinþegjandi og hugsi allt kvöldið og trúlega leiðst. Hún sagði sem sé ekki orð fyrr en loks hún sagði alveg upp úr þurru, á sinn „málfríðska“ hátt: „Það er enginn læknir í Tíbet.“ Svo sagði hún ekki meira það kvöldið! - Þarna hefur hún verið að hugsa til hins fjarlæga lands Tíbet, sem hún kallaði oft „athvarf sitt í nauð- um“. 238
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.