Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Blaðsíða 81
aðist sín fyrir hvað hún var hrædd. Þessi smekkvísa kona skammaðist sín fyrir innyflin í
sér, sem voru með kenjar að ókunnum manni ásjáandi.
8
Um það bil tuttugu ungmenni sitja við skólaborð og horfa kæru-
leysislega á Michele og Gabriellu sem standa spenntar fyrir framan
kennaraborðið þar sem frú Rafael situr. Þær halda á bunka af þétt-
skrifuðum blöðum sem hafa að geyma fyrirlesturinn þeirra auk þess
sem þær halda á undarlegum pappahlut með teygju.
„Við ætlum að fjalla um leikrit Ionescos, Nashyminginn,“ segir Michele, og hallar
höfðinu aftur til að koma skrautlegu pappahomi fyrir á nefinu á sér, síðan smeygir hún
teygju aftur fyrir hnakkann á sér. Sama gerir Gabriella. Síðan horfa þær hvor á aðra og
senda frá sér stutt, hvell hljóð.
Bekkurinn er búinn að átta sig á því, og það raunar fyrir löngu, að í fyrsta lagi vilja
stúlkumar tvær sýna að í stað nefs sé nashyrningurinn með hom og í öðm lagi að leikrit
Ionescos sé fyndið. Til þess að koma þessum hugmyndum á framfæri ákváðu þær
vissulega að beita orðum, en þó öðm fremur líkamshreyfingum.
Homin löngu sveiflast til og frá framan í þeim og bekkurinn fyllist hálf vandræðalegri
samúð, rétt eins og einhver væri að sýna afhöggvinn handlegg uppi við kennaraborð.
Frú Rafael er sú eina sem hrífst af uppátæki eftirlætisnemenda sinna og hún svarar
hvellum hljóðum þeirra með svipuðu kvaki.
Ungu stúlkurnar hrista löngu nefin sín ánægðar á svip og Michele byrjar að lesa sinn
hluta fyrirlestursins.
Meðal nemendanna er ung Gyðingastúlka sem heitir Sara. Nokkmm dögum áður hafði
hún beðið amerísku stúlkumar tvær að leyfa sér að kíkja á glósumar þeirra (allir vita að
þær drekka í sig hvert einasta orð sem hrýtur af vömm frú Rafael), en þær neituðu: þú
skalt bara hætta að hanga niðri á strönd og reyna að mæta í tíma. Síðan þá hatar Sara þær
innilega og skemmtir sér nú konunglega við að horfa á fíflaganginn í þeim.
Michele og Gabriella skiptast á að lesa greiningu sína á Nashymingnum og pappahom-
in löngu standa út úr andlitinu á þeim eins og í tilgangslausri bæn. Sara áttar sig á því að
það væri synd að grípa ekki þetta tækifæri. Þegar Michele þagnar og snýr sér að Gabriellu
til þess að láta hana vita af því að nú sé komið að henni, stendur Sara upp frá borði sínu
og gengur í áttina til ungu stúlknanna tveggja. í stað þess að hefja mál sitt stendur Gabriella
og starir opinmynnt á bekkjarsystur sína sem nálgast falska nefbroddinn á henni óðfluga.
Þegar Sara er komin á móts við stúlkumar tvær tekur hún á sig krók (amerísku stúlkumar
tvær geta ekki fylgst með því sem er að gerast fyrir aftan þær, eins og þær geti ekki hreyft
TMM 1990:3
79